eyjan.is

Fimmtudagur 28.04.2011 - 08:18 - Ummæli ()

Mikill meirihluti telur íslenskt viðskiptalíf siðlaust

Stjórnendur í fyrirtækjum eru flestir á því að siðferði, traust og gegnsæi sé mjög ábótavant í íslensku viðskiptalífi, einsog þessi mynd Viðskiptablaðsins ber með sér.

Sjö af hverjum tíu stjórnendum stærstu fyrirtækja landsins telja slæmt siðferði einkenna íslenskt viðskiptalíf, samkvæmt stjórnendakönnun MMR, sem Viðskiptablaðið birtir í dag.

Um 630 einstaklingar í 450 fyrirtækjum svöruðu könnuninni. Svipaðar niðurstöður fengust þegar spurt var um traust og gagnsæi. Rúmlega 30 prósent stjórnenda sögðu traust og gegnsæi í íslensku viðskiptalífi mjög sæmt og rúmlega 40 prósent sögðu það slæmt. Þegar spurt var um fagmennsku sögðu um 45 prósent ástandið slæmt eða mjög slæmt.

Svartsýni stjórnenda kemur hvergi jafnskýrt fram og í svörum þeirra um óefnislegar stærðir eins og siðferði, traust, gegnsæi og fagmennsku. Nánast enginn taldi nokkuð þessara atriða í mjög góðu lagi og sárafáir að þau væru í frekar góðu lagi.

Allnokkrir velktust í vafa, en algengustu svörin voru þau að ástandið væri slæmt. Hvað siðferði og traust áhrærði töldu tveir af hverjum þremur að ástandið væri slæmt, en þrír af hverjum fjórum að gegnsæi væri lélegt.

Það var aðeins þegar spurt var um fagmennsku, sem eilítið örlaði á jákvæðari afstöðu, en þó töldu aðeins um 16 prósent ástandið vera gott að því leyti.

Þrátt fyrir þessar niðurstöður er meirihluti stjórnenda, eða tæplega 58 prósent, bjartsýnn á framtíð og þróun eigin fyrirtækja næstu 12 mánuði.

Ekki var verulegur munur á afstöðu svarenda eftir atvinnugreinum, kynferði eða stöðu, samkvæmt úttekt blaðsins í dag.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is