Tveir þriðju landsmanna eru sáttir við nýgerða kjarasamninga samkvæmt könnun MMR
63% landsmanna eru sátt en 37% ósátt við nýgerða kjarasamninga, ef marka má nýja skoðanakönnun frá MMR.
54% þeirra sem afstöðu tóku sögðust frekar sátt en 9% mjög sátt við samningana. 13,4% sögðust hins vegar mjög ósátt og 23,6% frekar ósátt.
Kosningar standa nú yfir í verkalýðsfélögum um samningana. Aðferðin við afgreiðslu samninganna er misjöfn eftir félögum, sums staðar er boðað við félagsfunda, annars staðar eru rafrænar kosningar haldnar á netinu.
Í könnun MMR sögðust 65,8% kvenna sátt við kjarasamningana en 60,7% karla. Þá voru þeir sem gáfu upp stuðning við VG og Samfylkingu jákvæðari í garð samninganna en stuðningsmenn annarra flokka. 80,3% stuðningsmanna VG voru jákvæð í garð þeirra og 73,5% stuðningsmanna Samfylkingarinnar. 45,4% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins og 40,7% stuðningsmanna Framsóknarflokksins sögðust sátt við samningana.
—-
Sjá nánar um skoðanakönnun MMR.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
