Laugardagur - 21.5 2011 - 11:00 - Ummæli ()

Vill upplýsingar um fjölgun erlendra fanga og þátttöku erlendra glæpahópa í innbrotum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, vill að innanríkisráðherra leggi fyrir alþingi upplýsingar um hvernig mál erlendra afbrotamanna hafa þróast hér á landi, hvert sé hlutfall þeirra af föngum í landinu nú og fyrir tíu árum og um hugsanlegan þátt hópa erlendra afbrotamanna í innbrotum hér á landi.

Sigmundur hefur lagt fram tvær fyrirspurnir sem lúta að þessu og hefur ráðherrann tíu daga til þess að svara.

Önnur fyrirspurnin lýtur að því hversu margir erlendir fangar voru vistaðir í íslenskum fangelsum í byrjun maí 2011 og hvert var hlutfall erlendra fanga í íslenskum fangelsum í byrjun þessa mánaðar annars vegar og í byrjun maí 2001 hins vegar.

Hins vegar er fyrirspurn þar sem saman er spurt um fjölgun innbrota og hópa erlendra afbrotamanna. Þar er spurt: „Hversu mörg innbrot voru framin hér á landi á árunum 2009 og 2010 og það sem af er árinu 2011? [...] Hversu mörg innbrot voru framin hérlendis árin 1999 og 2000? [...] Er ástæða til að ætla að hópar erlendra afbrotamanna stundi skipuleg innbrot á Íslandi eða hafi gert það á síðastliðnum tveimur árum? Ef svo er, hefur verið lagt mat á hversu margir slíkir hópar stunda nú afbrot eða hafa gert á undanförnum tveimur árum?“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar