eyjan.is

Viðskipti Fimmtudagur 26.05.2011 - 15:11 - Ummæli ()

Könnun: Kvótahafar ættu að greiða markaðsvirði fyrir afnotaréttinn

Hagsmunir kvótaeigenda og almennings fara lítt saman samkvæmt könnun MMR

Kvótahafar eiga að greiða ríkinu leigu fyrir afnotin sem nema markaðsverðmæti sama kvóta að mati 71,4 prósent svarenda í nýrri könnun MMR um stjórn fiskveiða. Mælist þar mikill stuðningur við hugmyndir um afturköllun fiskveiðiheimilda.

Er þessi könnun framhald annarrar slíkrar frá því í febrúar síðastliðnum þar sem einnig mældist stór meirihluti fyrir að kvóti verður allur afturkallaður og sanngjörn leiga í kjölfarið greidd fyrir afnot.

Segja nú 71,4 prósent svarenda á þá lund að sanngjörn greiðsla komi fyrir afnot af auðlindinni. 67,5 prósent svara játandi að allur kvóti eigi að vera í eigu ríkisins og 63,5 prósent vilja að ríkið afturkalli allar fiskveiðiheimildir og úthluti undir breyttum reglum. Voru þessi hlutföll keimlík í könnun MMR í febrúar.

Athygli vekur að einungis 30,9 prósent telja að hagsmunir þjóðarinnar og hagsmunir núverandi kvótahafa séu sameiginlegir.

Könnun MMR. Bláa línan sýnir svör í febrúar en sú rauða svörin nú


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is