eyjan.is

Viðskipti Þriðjudagur 21.06.2011 - 15:44 - Ummæli ()

Séra Sigríður fær rætið bréf: „Þér hefur tekist að valda meira tjóni en okkur öllum“

Sigríður Guðmarsdóttir sóknarprestur og Karl Sigurbjörnsson biskup.

Á tölvupóstlista starfandi presta í þjóðkirkjunni er enn skrifast á um skýrslu rannsóknarnefndar um kynferðisafbrot innan kirkjunnar og ekki er þar allt jafnkristilegt.

Eyjan hefur áður birt skrif nafnlauss bréfritara á póstlistanum (sjá hér og hér) sem valdið hafa miklum titringi meðal presta, bæði vegna innihaldsins og þess af hve mikilli þekkingu er skrifað um innri málefni kirkjunnar. Nú hefur eitt bréf enn litið dagsins ljós og er það stílað á séra Sigríði Guðmarsdóttur prest í Grafarholti.

Séra Sigríður sendi á dögunum frá sér yfirlýsingu þar sem hún fór fram á að Karl Sigurbjörnsson segði af sér sem biskup, en þau Karl hafa áður tekist á. Árið 2003 sótti Sigríður um stöðu sendiráðsprests í Lundúnum en fékk ekki, en fékk í kjölfarið dæmdar bætur vegna brota biskups á jafnréttislögum þegar skipað var í embættið.

Hinn nafnlausi höfundur, „Eðvald Eðvaldsson,“ skrifar séra Sigríði fyrir hönd samtakanna Vantrúar, sem hafa verið höfuðandstæðingur þjóðkirkjunnar í opinberri umræðu. Bréfið er svohljóðandi:

„Ég vil fyrir hönd Vantrúar þakka þér fyrir. Þér hefur tekist að valda ríkiskirkjunni meira tjóni en okkur öllum.

Það er frábært að sjá hve staðföst þú ert í að losa okkur við þessa óværu sem kirkjan er.

Ef allt gengur áfram svona vel þá þarf ekki að pirra sig neitt um jólin. Frábært ef þú gætir losað okkur líka við messur í útvarpi.

Bestu þakkir og „keep up the good work“.

Fyrir hönd Vantrúar,

Eddi.

Ps. Mig langar svo að þakka þér persónulega. Yngri bróðir minn sem því miður trúir á Guð og allt þetta dót býr í hverfinu hjá þér.

Hann er hættur að fara í messu, þökk sér þér. Kallar þig æðsta prest haturs og hefndar og vill ekki taka við sakramenti úr slíkri hendi.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is