eyjan.is

Viðskipti Föstudagur 01.07.2011 - 07:59 - Ummæli ()

Fjöldi ofbeldisglæpamanna skuldar fórnarlömbum bætur

Dæmdir sakamenn skulda þolendum ofbeldis 266 milljónir króna í skaðabætur

Töluverður fjöldi dæmdra ofbeldismanna hefur ekki gert upp við fórnarlömb sín þó dómur hafi fallið þar um. Eru slík mál til innheimtu nú 306 talsins og nemur heildarfjárhæð skuldanna 266 milljónum króna.

Í Fréttablaðinu er fjallað um þetta í dag þar sem fram kemur að 250 einstaklingar eru að baki þeim 306 málum sem Innheimtumiðstöð hefur til meðferðar. Eru því allnokkrir einstaklingar sem skulda bætur vegna fleiri mála. Þeir verstu skulda hvor um sig bætur vegna sjö atvika.

Ár hvert greiðir íslenska ríkið þolendum ofbeldisglæpa milli 130 og 160 milljónir króna en um 400 umsóknir um slíkt berast árlega. Eru hámarksbætur fyrir líkamstjón 2,5 milljónir króna en 600 þúsund krónur fyrir miska.

Verið er að endurskoða bótasamsetningu hjá innanríkisráðuneytinu en fjárhæð bóta hér hefur staðið í stað í mörg ár og eru bætur hérlendis töluvert lægri en gengur og gerist í mörgum nágrannalöndunum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is