Gillz er íþróttasjálfurinn. Bólginn brjóstkassi ekki heilbrigð viðhorf

Egill Einarsson og Gillzenegger eru einn og sami maðurinn, ólíkt Ágústu Evu og Silvíu nótt, segir Guðmundur Andri.
Egill “Gillzenegger” Einarsson er svo “gagntekinn af sjálfum sér að hann er eiginlega íþróttasjálfurinn.”
Þetta er álit Guðmundar Andra Thorssonar, rithöfundar, á hinum margumræddu bloggfærslum Egils, þar sem hann svívirti nokkrar þingkonur og fleiri þekktar konur í samfélaginu.
„Hann er afkvæmi þeirrar menningar sem setur svonefnt líkamsatgervi ofar öllu öðru út af landlægum misskilningi um forvarnargildi íþrótta og gerir hinn vöðvastælta mann að mælikvarða allra hluta og sérfræðingi í mannlegri breytni. (…) Sjálfkrafa er gert ráð fyrir því að maður sem stundar lyftingar kvölds og morgna sé góð fyrirmynd ungu fólki, alveg burtséð frá því hvernig hann hegðar sér að öðru leyti. En bólginn brjóstkassi er því miður ekkert garantí fyrir heilbrigðum viðhorfum,” skrifar Guðmundur Andri í pistli sínum í Fréttablaðinu í dag.
Þar rifjar hann upp að gamlar bloggfærslur haldi áfram að hundelta Egil Gillzenegger, einsog Hjálmar Sveinsson benti á í liðinni viku á Eyjubloggi sínu og greint var frá hér á Eyjunni.
“Síðast þegar ég gáði voru áttatíu og eitthvað athugasemdir við grein Hjálmars á netinu, flestar á þá leið að hann væri vinstrisinnaður leiðindapúki og ætti því ekki erindi upp á dekk,” skrifar Guðmundur Andri.
Þá bendir rithöfundurinn á að grundvallarmunur sé á Gillzenegger og hinni ímynduðu persónu Silvíu nótt, en sumir hafa líkt þeim tveimur saman sem háðsádeilu á slíkar persónur.
„Nú ruglar að vísu enginn saman Silvíu Nótt og Ágústu Evu sem hana lék, ekki frekar en Árna Tryggvasyni var ruglað saman við Lilla klifurmús. Mörkin milli Egils Einarssonar vaxtarræktarfrömuðar og orðháks og svo aftur Gillzeneggers vaxtarræktarfrömuðar og orðháks eru hins vegar miklu óljósari. Ágústa Eva mætti ekki á samkomur með litlum börnum heldur sendi aðra og gjörólíka leikkonu í gervi Silvíu Nætur til að benda einmitt á þetta leikna eðli fígúrunnar um leið og hún minnti fólk á að Silvía Nótt væri alls ekkert holl börnum – áður en yfir lauk var Silvía Nótt líka orðin gjörsamlega óþolandi fyrir alla og hún dó úr frekju. Eins og raunar þjóðin öll. Enn hafa íslenskri þjóðarsál á árunum kringum 2006 ekki verið gerð betri og skarpari skil en með sögunni af Silvíu Nótt.
Sum sé: Gillzenegger hótaði því að beita nafngreindar konur í stjórnmálum hroðalegu ofbeldi og svo er sagt: þetta var háðsádeila, þetta er bara leikin persóna. En af hverju er hann þá framan á símaskránni handa drengjum að dást að og hugsa: „vá svona vill ég verða þegar ég er orðinn stór“?“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
