eyjan.is

Laugardagur 09.07.2011 - 14:38 - Ummæli ()

Jónsi á Bestu hátíðinni: Herrar mínir og hórur, vildi fá konur úr að ofan. Sagði aldrei stelpur, alltaf hórur

Framkoma Jónsa í Svörtum fötum í garð kvenna er svartasti bletturinn á Bestu útihátíðinni að mati kvenna á staðnum

„Herrar mínir og hórur.“ Svona ávarapaði Jónsi í Svörtum fötum gesti á Bestu útihátíðinni í nótt. „Eru ekki allar hórurnar í stuði?“ Jónsi sagðist ekki fara úr að ofan fyrr en einhver kæmi berbrjósta upp á sviðið.

Konur á staðnum eru æfar yfir framkomu Jónsa. „Hann sagði aldrei stelpur eða konur, alltaf hórur,“ sagði Dagný Ósk Aradóttir Pind, í samtali við Eyjuna, en hún er á Bestu útihátíðinni sem sjálfboðaliði í Nei – hreyfingu gegn kynbundnu ofbeldi.

Mikill fjöldi er á Bestu hátíðinni, þar á meðal auðvitað fjölmargar konur. Margar þeirra  hafa haft orð á framkomu Jónsa á Facebook-síðum sínum og eru þær hneykslaðar á framkomu söngvarans. Dagný segist ekki hafa rætt við Jónsa eftir framkomu hans en segist hafa frétt eftir öðrum að hann væri svekktur á sjálfum sér.

„Það var Quarashi sem kom og bað okkur um að koma á þessa hátíð af því að ofbeldi og kynferðislegt ofbeldi yrði ekki liðið hérna,“ sagði Dagný. „Í gær var Jónsi að spila og talaði ítrekað um konur sem hórur og bað þær að fara úr að ofan. Þetta er alveg úr takti við annað sem er í gangi hérna.“

Hápunktur Bestu útihátíðarinnar er hljómsveitin Quarashi sem snýr aftur á sviðið eftir langt hlé. Hljómsveitin var búin að lýsa því yfir að kynferðislegt ofbeldi yrði ekki liðið á hátíðinni og hafði meðal annars heitið því að styrkja Stígamót með hluta af hagnaðinum af hátíðinni.

Quaraashi fékk Dagnýju og félaga hennar í Nei – hreygingu gegn kynbundnu ofbeldi til þess að vera á staðnum og vekja gesti til vitundar um kynbundið ofbeldi og stuðla að því að ekkert slíkt kæmi upp á hátíðinni.

Dagný sagði að fyrir utan framkomu Jónsa hefði ekkert komið upp og engar fréttir hefðu borist af því að kynferðislegu ofbeldi hefði verið beitt á hátíðinni. Hún og félagar hennar ganga um svæðið hengja upp límmiða og tala við fólk. Hún segir að boðskap þeirra sé mjög vel tekið og stemmningin á hátíðinni sé góð.

„Þetta er svolítið leiðinlegt af því að tónninn er búinn að vera með okkur og aðstadendur hátíðarinnar búnir að standa sig vel,“ segir Dagný. „Ég vona að þetta sé einstakt leiðindamál.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is