Ungir karlmenn vilja leyfa spilavíti hér á landi en aðrir ekki
Karlmenn undir þrítugu eru afar jákvæðir gagnvart því að leyfa spilavíti hér á landi en andstaða er við slíkar hugmyndir hjá öðrum aldurshópum samkvæmt nýrri könnun.
Forvitnaðist markaðsrannsóknarfyrirtækið MMR um það hvort leyfa ætti rekstur spilavíta á Íslandi en hugmyndir þess efnis hafa af og til stungið upp kollinum.
Alls reynast tæp 70 prósent frekar eða mjög andvíg slíku meðan rétt rúm 30 prósent eru því hlynnt eða mjög hlynnt. Fækkar því heldur í hópi þeirra sem líta slíkt jákvæðum augum því 37 prósent voru slíku fylgjandi í könnun MMR um sama málefni í byrjun síðasta árs.
Eru karlmenn sem fyrr áberandi meira spenntir fyrir slíkum hugmyndum en konur. 44 prósent karla vilja leyfa slíkt en aðeins 16 prósent kvenna. Sérstaklega er áhuginn mikill hjá karlmönnum undir þrítugu en 70 prósent þeirra vilja leyfa spilavíti hérlendis.
Svarendur í könnun þessari voru 831 talsins.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

