Ný könnun: Algjört vantraust á stjórnmálum. Bankar ofar heimilum. 12,4% telja alþingi vinna fyrir almenning

12,4% svarenda í nýrri könnun MMR segjast sammála því að Alþingi sé að standa vörð um hagsmuni almennings.
Það eru engar ýkjur að segja stjórnvöld og stjórnmálamenn njóta lítils traust hjá almenningi.
Ný könnun frá MMR staðfestir þetta með sláandi hætti.
Tveir þriðju svarenda telja að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu banka en heimilanna í landinu.
Einungis 12,4% taka undir þá staðhæfingu að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings.
67,1% þeirra sem tóku afstöðu sögðust frekar sammála eða mjög sammála staðhæfingu um að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu banka en heimilanna í landinu.
Einungis 12,4% þeirra sem tóku afstöðu sögðust sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings á meðan 65,1% kváðust því ósammála.
Stjórnvöld munu áreiðanlega hugga sig við að stjórnarandstaðan fær ekki góða útkomu úr könnuninni. Þrátt fyrir hið almenna vantraust á stjórnvöldum sem ofangreindar tölur sína telja aðeins 32,7% að stjórnarandstaðan mundi stjórna landinu betur en ríkisstjórnin. 42,4% telja hins vegar að stjórnarandstaðan myndi ekki stjórna landinu betur en ríkisstjórnin.
Þessi könnun MMR er endurtekning sams konar könnunar sem fyrirtækið gerði í júlí í fyrra. Breytingarnar á þessu ári eru ekki verulegar. Í fyrra töldu 70,8% að hagsmunir banka væru ofar á blaði en hagsmunir heimila. Í fyrra töldu 15,8% að Alþingi væri að verja hagsmuni almennings en 64,1% voru því ósammála. Í fyrra treystu 29,3% stjórnarandstöðunni betur en stjórninni en 45,2% treystu þá stjórninni betur en stjórnarandstöðunni.
831 einstaklingur á aldrinum 18-67 ára tók þátt í könnuninni, sem var netkönnun, gerð 10.-14. júlí. Úrtakið var valið af handahófi úr hópi álitsgjafa MMR.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
