Föstudagur 19.08.2011 - 22:20 - Ummæli ( ) 
Haraldur Gíslason: Þakkar 93% stuðning og langar að knúsa þau 6% sem styðja ekki kröfur leikskólakennara

Haraldur F. Gíslason þakkar þjóðinni fyrir stuðninginn og vill knúsa þau 6% sem ekki styðja kröfur leikskólakennara samkvæmt nýrri könnun.
„Ég þakka allri þjóðinni stuðninginn. Mig langar að knúsa 6%,“ segir Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, á Facebook-síðu sinni í kvöld.
Hann er þarna að bregðast við fréttum af nýrri skoðanakönnun sem sýnir að kjarabarátta leikskólakennara nýtur ótrúlega almenns stuðnings meðal þjóðarinnar.
Könnunin, sem MMR gerði og kynnti í dag sýnir að 93,% svarenda sögðust hlynntir því að hækka ætti laun leikskólakennara og forðast þannig að verkfall skelli á frá og með næsta mánudegi.
Af hverju viltu bara knúsa 6% er Haraldur spurður af vini sínum á Facebook og svarið er: „Þau þurfa meira á því að halda.“
Þessi 6% sem Harald langar til að knúsa eru væntanlega þeir sem segjast frekar andvígir eða mjög andvígir því að laun leikskólakennara verði hækkuð.
Niðurstaða könnunar MMR var á þann veg að 67,4% sögðust mjög fylgjandi hækkun launa
leikskólakennara svo afstýra mætti verkfalli, 25,7% sögðust frekar fylgjandi. 4,0% sögðust frekar andvíg og 2,9% kváðust mjög andvíg.
„Samkvæmt könnuninni var stuðningur við launahækkanir til handa leikskólakennurum svo afstýra mætti verkfalli nokkuð almennur. Það sést t.d. þegar svör við spurningunni eru skoðuð eftir stuðningi fólks við stjórnmálaflokka,“ segir í tilkynningu MMR. „Þar kom í ljós að 98,0% Samfylkingarfólks, 99,0% Vinstri-grænna, 90,3% framsóknarfólks og 86,7% sjálfstæðisfólks sögðust mjög eða frekar fylgjandi launahækkun til leikstólakennara svo komast mætti hjá verkfalli.“
Könnunin byggir á 881 svari frá einstaklingum á aldrinum 18-67 ára sem valdir voru af handahófi úr hópi álitsgjafa MMR.
Ummæli ( )
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
