Rúmlega þriðjungur hugleitt að segja sig úr þjóðkirkjunni að undanförnu

Biskup Íslands sagði í ræðu í sumar að kirkjan þyrfti að endurvinna traust almennings. Ný könnun staðfestir það
Rúmlega þriðjungur aðspurðra í nýrri könnun hafa hugleitt að segja sig úr þjóðkirkjunni á síðustu mánuðum. Töluverður munur er á þessari afstöðu eftir aldri en yngra fólk virðist hugleiða þetta frekar en það eldra.
Tók MMR stöðuna á þessu í nýrri könnun þar sem niðurstaðan var að 34,4 prósent þátttakenda hafa íhugað úrsögn síðustu mánuði en 65,6 prósent höfðu ekki leitt hugann að því.
Minnkar fjöldi þeirra sem sagðist hafa hugsað um að segja sig úr þjóðkirkjunni með hækkandi aldri, en 39,9% þeirra sem tóku afstöðu og voru í aldurshópnum 18 til 29 ára sögðust hafa hugleitt það borið saman við 25,5 prósent í elsta aldurshópnum. Þá voru fleiri karlar en konur sem íhugað hafa að segja sig úr þjóðkirkjunni á síðastliðnum mánuðum eða 36,9 prósent karla borið saman við 32,1 prósent kvenna.
Fyrr í sumar viðurkenndi kirkjan að í kjölfar niðurstöðu rannsóknarskýrslu kirkjunnar hefði úrsögnum úr kirkjunni fjölgað töluvert en ekki voru gefnar upp tölur í því sambandi.
713 einstaklingar tóku þátt í könnun MMR.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
