Ný könnun MMR gefur til kynna umskipti í afstöðu til borgarstjóra: 61,7% segjast nú óánægðir
Íslendingar eru flestir jafnánægðir og þeir voru í fyrra með vinnuna sína, nágrannana og sumarfríið en veðrið veldur talsvert fleiri vonbrigðum en áður.
Hins vegar eru umskipti orðin í afstöðu fólks til Jóns Gnarr borgarstjóra í Reykjavík, ef marka má nýja könnun MMR.
Hann naut almennra vinsælda í fyrra, miðað við mælingu sem þá var gerð .
61,7% þeirra sem tóku nú afstöðu í könnun MMR segjast nú óánægð með borgarstjórann í Reykjavík.
Í ágúst í fyrra voru aðeins 22,4% óánægð með Jón Gnarr.
Þá voru 77,6% ánægð með borgarstjórann en nú aðeins 38,3%.
72,5% aðspurðra tóku afstöðu til spurningarinnar í ár.
Fyrir utan ánægju og óánægju með borgarstjórann birtir MMR svör við spurningum um ánægju og óánægju með veðrið, sumarfríið, vinnuna og nágrannana.
Þar tóku um 90% afstöðu og reyndust nær allir ánægðir. Um og yfir 90% tóku afstöðu til sömu spurninga í fyrra.
91% eru ánægðir með nágrannana, 90,2% eru ánægð með sumarfríið og 89,9% eru ánægð með vinnuna sína.
Þetta eru allt smávægilegar breytingar frá afstöðunni í fyrra þegar ánægjan með þessa þætti var á bilinu 91,2-92,9%.
Veðrið vekur hins vegar ekki sömu lukku þátttakenda í viðhorfahópi MMR og í fyrra.
62% svarenda segjast ánægðir með veðrið í sumar en 94,7% voru ánægð með veðrið fyrir ári síðan.
„Könnunin var framkvæmd dagana 15.-18. ágúst 2011 og var heildarfjöldi svarenda 818 einstaklingar,“ segir í tilkynningu MMR.
Leiðrétt: Í upphaflegri frétt var sagt að upplýsingar um mælingu MMR frá í fyrra hefðu ekki birst fyrr en nú en það er ekki rétt, þær voru birtar í september 2010 en upplýsingar um ánægju með veður, nágranna, fjárhagsstöðu og vinnu birtust hins vegar í desember 2010
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

