
Svandís mun rannsaka hvernig forveri hennar í starfi, Siv Friðleifsdóttir, snérist gegn úrskurði Skipulagsstofnunar varðandi Lagarfljót.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, mun láta skoða ítarlega hvernig ráðuneytið, undir stjórn Sivjar Friðleifsdóttur, komst að þeirri niðurstöðu í aðdraganda byggingar Kárahnjúkavirkjunar að virkjunin sú hefði engin áhrif á lífríki Lagarfljóts.
Eins og komið hefur fram á mælingum sérfræðinga er Lagarfljótið nú mun gruggugra en það var áður en Kárahnjúkavirkjun tók til starfa.
Á þeim tíma var það niðurstaða umhverfisráðuneytisins að áhrifin yrðu engin þó fyrir lægju þá álit bæði Landsvirkjunar og Skipulagsstofnunar sem sýndu fram á hið gagnstæða. Enginn veit hvernig umhverfisráðuneytið komst að þessari niðurstöðu sinni sem reynst hefur röng.
Vildi Mörður Árnason, Samfylkingu, vita í fyrirspurnartíma á Alþingi hvort núverandi umhverfisráðherra hygðist rannsaka málið og svaraði Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, því til að málið yrði sannarlega skoðað. Fannst Merði athyglisvert við upphaf spurninga sinna að þingmenn kjördæmisins skemmtu sér konunglega yfir jafn alvarlegu máli.
„Það er fróðlegt að verða var við það að þingmenn skemmta sér yfir þessum tíðindum [af lífríki Lagarfljóts] og þá ekki síst þingmenn þess kjördæmis sem um ræðir. Sitja hér á fremsta bekk og hafa í flimtingum um þau tíðindi er þarna eru flutt af Lagarfljóti. Það er athyglisvert og ekki síst fyrir kjósendur þeirra að verða var við það.“
Svaraði Svandís því til að þetta mál yrði sannarlega skoðað í þaula hjá ráðuneyti sínu en sjálf hefur Siv Friðleifsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra, neitað að tjá sig.
„Hvernig datt ráðherranum [Siv] í hug á þessum tíma að snúa úrskurði Skipulagsstofnunar er grundvallaratriði og í sjálfu sér er ákvarðanatökuferillinn allur í kring um Kárahnjúkavirkjun kannski alvarlegasta táknmynd yfirgangs stóriðjustefnunnar á Íslandi. Þáverandi virðulegur umhverfisráðherra var partur af þeim mjög svo skýra pólitíska vilja sem að þá réði ríkjum og leiddi ákvarðanir fram óháð þekkingu , óháð upplýsingum, til þeirrar niðurstöðu er pólitíkin hafði tekið ákvörðun um að skyldi fyrir liggja. Það þyrfti að skoða í stóru samhengi hvernig stóriðjustefnan valtaði hér yfir skynsemi og niðurstöður af ýmsu tagi en kannski ekki síst nákvæmlega þetta sem hér er dregið fram.“
