Meirihluti vill að Alþingi fjalli ítarlega um frumvarp stjórnlagaráðs
Rúmlega helmingur svarenda í nýrri könnun MMR vill að Alþingi fjalli ítarlega um frumvarp stjórnlagaráðs til stjórnarskrár en 42,6% vilja að Alþingi skipti sér sem minnst af innihaldi frumvarpsins.
„Hver telur þú að aðkoma Alþingis eigi að vera við afgreiðslu nýs frumvarps Stjórnlagaráðs til stjórnarskrár?“
Svarmöguleikar voru: Alþingi skipti sér sem minnst af innihaldi frumvarpsins, Alþingi fjalli ítarlega um innihald frumvarpsins og veit ekki/vil ekki svara. Samtals tóku 61,1% afstöðu til spurningarinnar. 57,4% þeirra vildi að Alþingi fjallaði ítarlega um frumvarpið en 42,6% að Alþingi skipti sér sem minnst af innihaldinu.
MMR segir:
„Rétt er að undirstrika að einungis 61,1% tóku afstöðu til spurningarinnar sem endurspeglar hve fáir höfðu í raun kynnt sér frumvarp Stjórnlagaráðs,“ og vísar þar til könnunar sem fyrirtækið gerði og Eyjan sagði frá á dögunum þar sem fram kom að um 53% höfðu ekki kynnt sér frumvarpið.
83,1% þeirra sem höfðu kynnt sér frumvarpið að einhverju marki tóku afstöðu til spurningarinnar.
Í tilkynningu frá MMR segir að afstaðan hafi verið breytileg eftir fylgi við stjórnmálaflokka. 69,9% þeirra sem tóku afstöðu og sögðust styðja Sjálfstæðisflokkinn vildu að Alþingi fjallaði ítarlega um frumvarpið; það sama vildu 57,8% stuðningsmanna Framsóknarflokksins, 54,2% stuðningsmanna Samfylkingarinnar en 49% stuðningsmanna Vinstri grænna.
46,7% þeirra sem segjast styðja ríkisstjórnina vilja að Alþingi fjallaði ítarlega um frumvarp Stjórnlagaráðs en 61,4% þeirra sem styðja ekki ríkisstjórnina.
65,1% kvenna en 52,7% karla telja að Alþingi eigi að fjalla ítarlega um frumvarpið 60,3% höfuðborgarbúa en 51,8% fólks á landsbyggðinni vill að Alþingi fjalli ítarlega um efni frumvarpsins.
Nánar er hægt að skoða afstöðu einstakra hópa til spurningarinnar á myndinni hér að ofan. Hún sést í fullri stærð ef smellt er á hana tvisvar.
Könnunin var gerð 15.-18. ágúst. 881 svar barst frá fólki á aldrinum 18-67 ára sem valið var af handahófi úr hópi álitsgjafa MMR.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
