eyjan.is

Þriðjudagur 20.09.2011 - 12:00 - Ummæli ()

Meirihluti vill að þjóðin greiði atkvæði vegna frumvarps um nýja stjórnarskrá

Þjóðin á að fá að segja sitt í atkvæðagreiðslu um frumvarp til nýrrar stjórnarskrár

Þrír af hverjum fjórum í nýrri könnun vilja að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um frumvarp Stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár. Flestir vilja líka að þjóðaratkvæðagreiðslan verði látin ráða úrslitum.

Framkvæmdi MMR könnun á því hvaða afstöðu fólk hefði til þess hvert hlutverk þjóðaratkvæðagreiðslu ætti að vera við afgreiðslu á frumvarpi Stjórnlagaráðs til stjórnarskrár.

Stór meirihluti, 75,3 prósent, sem afstöðu tók vildu að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um frumvarpið. Af þeim sögðu tæplega helmingur, 47,7 prósent, að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar ætti að ráða úrslitum um afgreiðslu frumvarpsins meðan 27,6 prósent voru á því að þjóðaratkvæðagreiðslan ætti að vera leiðbeinandi fyrir Alþingi.

Aðeins 24,7 prósent þeirra sem tóku afstöðu vildu ekki að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um frumvarpið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is