82% vilja endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmáls
82% svarenda í nýrri könnun MMR vilja að Guðmundar- og Geirfinnsmálin verði tekin upp að nýju.
Spurt var: „Hversu sammála eða ósammála ertu því að svonefnt Guðmundar- og Geirfinnsmál verði tekið aftur upp af dómstólum?“
Svarmöguleikar voru: Mjög sammála, frekar sammála, frekar ósammála, mjög ósammála og veit ekki/vil ekki svara.
Spurt var dagana 6.-10. október og svöruðu 921. Samtals tóku 81,7% afstöðu til spurningarinnar.
Af þeim voru 82,0% frekar eða mjög sammála því að Guðmundar- og Geirfinnsmálið yrði tekið upp aftur. Þar af voru 54,7% mjög sammála því og 27,3% frekar sammála því.
18,0% voru frekar eða mjög ósammála því að málið yrði tekið aftur upp af dómstólum og þar af voru 9,7% mjög ósammála og 8,3% frekar ósammála.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

