eyjan.is

Miðvikudagur 26.10.2011 - 11:58 - Ummæli ()

Fleiri treysta ríkisstjórninni en stjórnarandstöðunni. Alþingi í heild treysta tæp 11 prósent

Traust almennings á Alþingi er lítið en ríkisstjórnin nýtur þó meira trausts nú en stjórnarandstaðan

Fleiri segjast nú treysta ríkisstjórn Íslands en stjórnarandstöðunni á Alþingi samkvæmt nýrri könnun MMR. Nýtur ríkisstjórnin trausts 14,1 prósent svarenda meðan aðeins 13.6 prósent telja stjórnarandstöðuna trausts verða. Aðeins tæp ellefu prósent treysta Alþingi í heild.

Hefur þetta snúist við frá sambærilegri könnun MMR fyrir ári síðan þegar einungis 10,9 prósent lýstu yfir stuðningi við ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur meðan stjórnarandstaðan naut trausts 17,8 prósenta.

Sem fyrr er það lögreglan sem fólk almennt ber mest traust til en 81,3 prósent hafa traust á því embætti. Háskóla Íslands treysta 68 prósent og RÚV nýtur trausts 58 prósenta.

Traust eykst töluvert á Landsvirkjun milli ára og nýtur það trausts 34 prósenta nú en 24,7 prósent höfðu trú á því fyrirtæki í október 2010.

Bankakerfið fær sem fyrr skell. Aðeins 5,9 prósent bera traust til þess kerfis. Þá fær Fjármálaeftirlitið heldur ekki mikla traustsviðurkenningu eða aðeins 7,8 prósent. Rétt rúm fimmtán prósent treysta lífeyrissjóðunum og þá nýtur Evrópusambandið traust 18,6 prósent þátttakenda.

921 einstaklingur tók þátt í þessari könnun MMR og var svarhlutfall 98 prósent.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is