Af hverju má ekki nýta laus pláss á leikskólum? Hver ákvað það eiginlega?

Líf Magneudóttir undrast mjög stefnu borgaryfirvalda í leikskólamálum. (Mynd. Reykjavik.is)
Hver ákvað að ekki skuli nýta laus pláss á leikskólum Reykjavíkur, sem hægt er að ráðstafa án þess að fjölga starfsfólki? Þess sér hvergi stað í fundargerðum hvar sú ákvörðun var tekin.
Þetta segir Líf Magneudóttir varaborgarfulltrúi VG, sem einnig situr í skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar, í pistli á vefmiðlinum Smugunni í dag.
Eins og fram hefur komið er fjöldi foreldra í vandræðum vegna skorts á leikskólaplássum í Reykjavík, þótt leikskólastjórar fullyrði að fjöldi plássa sé laus og hægt að nýta þau án þess að bæta við starfsfólki. Leikskólastjórar fengu þau fyrirmæli frá borginni að svara ekki spurningum fréttastofu Ríkisútvarpsins um þessi efni, en fréttastofan hefur fjallað um málið undanfarna daga.
Líf Magneudóttir undrast mjög það sem hún kallar úrræðaleysi meirihlutans í borginni:
„Eftir að hafa barið sér á brjóst og hreykt sér af þeim árangri sem náðist í leikskólamálum í tíð R-listans hefur Samfylkingin ekki sýnt af sér að hún sé tilbúin að halda því starfi áfram og þróa það. Þvert á móti virðist núverandi meirihluti vilja spilla árangrinum með fækkun stjórnendastaða og sameiningum. Lítið hefur reyndar heyrst í Besta flokknum í þessu máli og meira að segja borgarstjórinn hefur ekkert um málið að segja.
Það ætti að vera forgangsastriði þegar kreppir, að auka fé til málaflokka sem snerta börn og ungmenni. Það hlýtur hverjum sem er að vera það ljóst að sá málaflokkur er viðkvæmastur og að farsælast er að hlúa sem best að honum. En hvað vefst fyrir meirihlutanum?
Á leikskólum borgarinnar eru ónýtt pláss fyrir börn fædd 2010. Þeim plássum má ráðstafa án þess að ráða aukalega starfsfólk. Þrátt fyrir það koma tilmæli frá borginni til leikskólastjóra að þeir megi ekki ráðstafa þeim. Ég velti fyrir mér hvar, hvenær og hvers vegna sú ákvörðun var tekin. Ekki var hún tekin á vettvangi skóla- og frístundaráðs og ekki hef ég séð í fundargerðum að málið hafi komið á borð borgarráðs. Slík vinnubrögð samræmast ekki hugmyndum um fjölskipað stjórnvald og góða stjórnsýsluhætti.
Þar fyrir utan var fyrirmælum beint til leikskólastjóra að neita að svara spurningum RÚV um hversu mörg óráðstöfuð pláss eru í skólunum. Það er mér hulin ráðgáta af hverju það þurfi að ríkja leynd yfir því. Leikskólastjórar þekkja skólana sína best og eru fullfærir um að veita þessar upplýsingar. Það er síðan pólitísk ákvörðun hvort og hvernig plássin skuli nýtt.“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
