eyjan.is

Miðvikudagur 09.11.2011 - 12:33 - Ummæli ()

Siðanefnd telur Maríu Lilju margbrotlega gegn Davíð Þór. Innihald.is biðst afsökunar. Grein fjarlægð

Ritstjórn vefjarins Innihald.is – sem birti grein eftir Maríu Lilju Þrastardóttur þar sem Davíð Þór Jónsson var kallaður „gamall ritstjóri klámbæklings, þar sem líkamar kvenna voru hlutgerðir og settir upp sem söluvara“ og sagður hafa brenglað viðhorf til kynlífs og kvenna – hefur beðist afsökunar á birtingu greinarinnar og hefur hún verið fjarlægð af vefnum.

Siðanefnd Innihalds.is hefur jafnframt fjallað um greinina í tilefni af kæru Davíðs Þórs og fellt þann úrskurð að í greininni  hafi María Lilja gerst margbrotleg við þær siðareglur sem vefurinn hefur sett sér.

Eyjan fjallaði ítarlega um deilu Maríu Lilju og Davíðs Þórs og sagði frá pistli Davíðs Þórs þar sem hann gagnrýndi baráttuaðferðir samtakanna Stóru systur gegn vændi. Pistillinn varð tilefni þess að María Lilja birti opið svar á hinum nýja vef Innihald.is. Davíð Þór brást við svarinu með því að hóta að höfða meiðyrðamál enda hefði verið ómaklega að sér vegið.  María Lilja dró ekkert til baka. Dvíð Þór  baðst síðan afsökunar á hótun um málshöfðun en vísaði málinu til siðanefndar Innihalds.is.  „Þeir sem ekki taka möglunar- og gagnrýnislaust undir allt, sem ákafasta kvenréttindafólk landsins um þessar mundir heldur fram, eru nefnilega gjarnan úthrópaðir sem málsvarar meinsemdanna sem barátta þeirra beinist gegn,“ skrifaði Davíð Þór. „Staðreyndin er nefnilega sú að fullt af fólki er dauðhrætt við að leggja orð í belg af ótta við viðbrögð eins og grein þín var.“

Siðanefnd Innihalds.is hefur nú birt úrskurð þar sem ítarlega er farið yfir umkvörtunarefni Davíðs Þórs. Niðurstaða nefndarinnar er sú að María Lilja hafi gerst brotleg við ákvæði sex greina í siðareglum vefsins.

Meðal annars segir í úrskurði siðanefndarinnar:

Siðanefnd telur hins vegar að ekki hefði átt að vísa til fortíðar Davíðs á þann hátt sem María gerir í greininni, sérstaklega í ljósi opnunargreinar ritstjórnar innihalds.is þar sem því er lýst yfir að nafnið innihald endurspegli þá skoðun [ritstjórnar] að í vandaðri og yfirvegaðri umfjöllun og umræðu um hvers konar málefni sé það innihald þess sem fólk hefur fram að færa það eina sem máli skipti. Fortíð, bakgrunnur, stjórnmála- og trúarskoðanir, fjölskylduhagir, kyn eða kynhneigð, útlit og ytri þættir eigi ekki að vera í forgrunni heldur eigi málflutningurinn að standa eftir sem framlag einstaklingsins til umræðunnar. [...]

Ekki verður séð að María Lilja hafi nálgast viðfangsefni sitt af heilindum, með gagnrýnni hugsun eða málefnalegum rökstuðningi þegar hún sagði Davíð Þór hafa í pistli sínum rekið upp harmavein til bjargar fórnarlömbum Stóru systur, í hverjum hann gagnrýndi aðferðafræði samtakanna. [...]

Með orðum sínum er María Lilja brotleg við 4. mgr. siðareglna innihalds.is en það ákvæði kveður á um að greinarhöfundur skuli gæta þess að fullyrða ekki meira en vitneskja hans gefi tilefni til og gera skýran greinarmun á skoðunum sínum og staðreyndum.

Telur siðanefnd að Maríu Lilju hafi láðst að nálgast viðfangsefni sitt af virðingu, umburðarlyndi og án fordóma eða sleggjudóma. Þar með hafi María Lilja einnig gerst brotleg við 2. mgr. siðareglna innihalds.is en það ákvæði kveður á um að greinahöfundur hafi í öllum skrifum sannfæringu sína að leiðarljósi og að greinarhöfundar séu sérstaklega hvattir til að hafa að leiðarljósi einkunnarorð síðunnar, þ.e. virðing, metnaður, ábyrgð og jafnræði.“

Í framhaldi af þessum úrskurði hefur ritstjórn Innihalds.is birt yfirlýsingu á vefnum þar sem segir meðal annars:

„Bréfið hefur þegar verið tekið úr birtingu og harmar ritstjórn þau óþægindi og særindi sem þetta mál hefur haft í för með sér.

Við ákvörðun um birtingu bréfsins varð misbrestur á gagnrýnum yfirlestri ritstjórnar og eru lesendur og aðilar málsins beðnir afsökunar. Hlutverk ritstjórnar er að sjá til þess að siðareglum sé fylgt og þykir henni miður að þessi mistök hafi átt sér stað. Verklag ritstjórnar við skoðun efnis hefur verið yfirfarið og endurbætt til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig.

Það er einlægur vilji aðstandenda vefsins að hann verði vettvangur líflegrar og vandaðrar umræðu í framtíðinni þar sem metnaður, virðing og ábyrgð verða höfð að leiðarljósi.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is