Öflug umfjöllun um nýjar íslenskar bækur á Eyjunni

Meðal ritdómara Eyjunnar: Brynhildur, Egill, Eiríkur, Eva María, Helgi, Illugi, Jóhann, Svanborg, Markús og Sólveig.
Eyjan eykur enn þjónustu við lesendur sína með kröftugri umfjöllun um nýjar íslenskar bækur fyrir jólin.
Nýir bókatitlar sem koma á markað þessar vikurnar skipta hundruðum, en það er markmið Eyjunnar að gera skil sem flestum nýútgefnum íslenskum skáldverkum og ritum almenns eðlis. Af miklu er að taka og til verksins hefur fengist hópur valinkunnra ritdómara.
Meðal þeirra eru: Brynhildur Ólafsdóttir, Egill Ólafsson, Eiríkur Stephensen, Eva María Jónsdóttir, Helgi Seljan, Illugi Jökulsson, Jóhann Hlíðar Harðarson, Jón Knútur Ásmundsson, Markús Már Efraím, Pétur Gunnarsson, Sólveig Arnarsdóttir og Svanborg Sigmarsdóttir.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
