Samtök atvinnulífs vara við auðlegðarskatti. Ríkir munu flytja af landi brott

Auðugir einstaklingar munu flytja í meira mæli af landi brott ef auðlegðarskattur verður ekki afnuminn að mati SA
Ríkir einstaklingar munu í vaxandi mæli flytja af landi brott í framtíðinni haldi stjórnvöld fast við áform sín um auðlegðarskatt. Þá munu aðrir einstaklingar sem ekki eiga hægt um vik að flytjast búferlum leita annarra leiða til að forðast eignaupptöku.
Telja Samtök atvinnulífsins í áliti um frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum að álagning fjármagnstekjuskatts á fjármagnstekjur sem ekki ná því að bera arð umfram verðbólgu sé í raun hrein og bein eignaupptaka. Þannig hátti til um allar fjármagnstekjur sem eru undir þeirri 5% verðbólgu sem nú ríkir í landinu.
Skatturinn muni því stuðla að því að einstaklingar sem eiga fastafjármuni eða eignarhluti í félögum geti lent í erfiðleikum með að greiða skattinn vegna erfiðrar lausafjárstöðu þótt eignastaða þeirra sé góð. Þeir munu því leita hagfelldara skattaumhverfis og fjárfestinga á erlendri grundu.
Taka samtökin dæmi um einnar milljónar króna. eign umfram 150 milljóna króna markið. 5 prósent ávöxtun skili 50 þúsund kr. Að teknu tilliti til verðbólgu, fjármagnstekjuskatts og auðlegðarskatts sé raunávöxtun neikvæð um 30 þúsund krónur.
Ávöxtunin þurfi að vera 8,75 prósent að lágmarki til þess að nokkur raunávöxtun fáist og 8,1 prósent á eignum á bilinu 75 til 150 milljóna. Því sé augljóst að þessir skattar ýta upp ávöxtunarkröfu fjárfestinga og slá alla fjárfestingarkosti út af borðinu sem ekki eru vel yfir þessum mörkum.
Morgunblaðið greinir frá.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
