Guðmundur Andri: Faðir minn hefði aldrei samþykkt að vera í mynd um Björgólf Thor Björgólfsson

Thors saga fjallaði einkum um Björgólf Thor Björgólfsson, en ekki Thor Jensen.
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur segir að myndin Thors saga, sem sýnd var í Sjónvarpinu í gærkvöldi, sé allt annars konar mynd en lýst hafi verið fyrir fjölskyldunni.
Faðir Guðmundar Andra, Thor heitinn Vilhjálmsson rithöfundur, var barnabarn athafnamannsins Thors Jensen. Hann kom fram í myndinni sem og Helga Magnússon systir hans.
Guðmundur Andri segir að þau systkinin hafi staðið í þeirri trú að myndin ætti að fjalla um Thor Jensen:
„Þegar faðir minn og systir hans féllust á að taka þátt í danskri mynd stóðu þau í þeirri meiningu að um væri að ræða mynd um afa þeirra, Thor Jensen. Faðir minn lifði ekki að sjá þá mynd sem sýnd var í sjónvarpinu á sunnudagskvöld og fjallaði einkum um Björgólf Thor Björgólfsson og umsvif hans, áhugamál og hugrenningar sem sett voru í samhengi við umsvif gamla Thors. Slíkri mynd hefði faðir minn ekki tekið þátt í,“ segir Guðmundur Andri.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
