87,7% Íslendinga andvíg hugmyndum um lögleiðingu kannabisefna
Einungis 12,3% þjóðarinnar eru hlynnt lögleiðingu kannabisefna.
87,7% eru andvíg – þar af 75,2% mjög andvíg – því að efnið verði lögleitt.
Þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar MMR.
Andstaða við lögleiðingu mælist vaxandi því í síðustu könnun fyrirtækisins fyrir réttu ári sögðust 83,1% andvíg lögleiðingu.
Mikill kynjamunur er á afstöðunni. Þannig eru 18,7% karla en aðeins 6,8% kvenna hlynnt lögleiðingu kannabisefna.
Hugmyndin nýtur einnig mest fylgis meðal yngsta aldurshópsins en 26,1% fólks á aldrinum 18-29 ára segist hlynnt lögleiðingu en aðeins 5,8% fólks yfir fimmtugu.
Einnig kemur fram að 23,4% fólks í lægsta tekjuhópnum er hlynnt lögleiðingu en í öðrum tekjuhópum er 9-13% stuðningur við lögleiðingu.
Hugmyndin um lögleiðingu nýtur mest fylgis meðal stuðningsmanna Framsóknarflokksins, eða 13,4%. 12,7% Samfylkingarkjósenda styðja lögleiðingu, en 7,9% kjósenda Sjálfstæðisflokksins og 6,0% kjósenda Vinstri grænna.
Tæplega 900 manns voru í úrtaki og tóku 95,2% afstöðu til spurningarinnar.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

