Omega vill peninga frá níu ára stúlku. „Þetta er stríð við stríðsherra myrkursins“

Á gíróseðlinum er stúlkan hvött til að láta reyna á Guð og sjá hvort hann úthelli ekki „yfirgnæfanlegri blessun“ yfir hana ef hún styrkir sjónvarpsstöðina.
Kristilega sjónvarpsstöðin Omega hefur í þrjú ár í röð sent stúlku í Reykjavík bréf og gíróseðla með ákalli um að styðja stöðina fjárhagslega.
Stúlkan er fædd árið 2002 og er því níu ára gömul.
Í nýjasta bréfinu er stúlkan hvött til að leggja stöðinni til fimm, sjö eða fimmtán þúsund krónur á mánuði í þrjú ár, sem verði til mikillar blessunar enda sé sjónvarpsstöðin að endurnýja tækjabúnað sinn.
Í bréfinu, sem sjónvarpsstjórinn Eiríkur Sigurbjörnsson skrifar undir og barst nú í desember, segir að stuðningur við stöðina sé nauðsynlegur „sérstaklega þar sem við sjáum hvað er að gerast í okkar þjóðfélagi, þar sem myrkrið grúfir yfir og mikill afkristnisandi er til staðar.“
Í niðurlagi bréfsins segir Eiríkur: „Megi Guð blessa þig ríkulega og launa þér margfalt til baka.“
Með fylgdi gíróseðill með nafni stúlkunnar og kennitölu, þar sem skýrt kemur fram hvenær hún er fædd.
Á gíróseðlinum er einnig þessi tilvitnun í Biblíuna: „Færið alla tíundina í forðabúrið til þess að fæðsla sé til í húsi mínu, og reynið mig einu sinni á þennan hátt segir Drottinn allsherjar -, hvort ég lýk ekki upp fyrir yður flóðgáttum himinsins og úthelli yfir yður yfirgnæfanlegri blessun.“
Foreldrar stúlkunnar vilja ekki koma fram undir nafni, en segjast hafa haft samband við Omega þegar fyrsta bréfið kom fyrir tveimur árum. Það hafi ekki skilað neinum árangri, heldur haldi bréfin til barnsins áfram að berast, stíluð á hana persónulega og hún ávörpuð sem „vinur“ Omega.
„Hún las fyrsta bréfið og þegar við vildum ekki setja peninga í þetta spurði hún af hverju við vildum ekki hjálpa Guði,“ segir faðir hennar.
Með bréfi sem barst í fyrra, þegar stúlkan var átta ára, fylgdi það sem kallað var „mjög athyglisverð frásaga trúsystur sem fékk að upplifa hluti sem varða Ísland.“
Frásagan er fjögurra síðna bréf frá konu að nafni Julie Meyer, þar sem hún lýsir því að „fyrirliði hersveita Drottins“ hafi birst henni og sagt að hún hefði sérstöku hlutverki að gegna gagnvart Íslandi:
„Spáðu yfir landinu, því að hjörtu fólksins eru orðin þreytt. Því fjölkynngi og andi aldarinnar eru fljótir að ná hjörtum ungra sem aldinna og þeir sem hafa verið að hrópa á nafn Drottins eru orðnir þreyttir,“ sagði þessi sendiboði guðs við konuna.
Meyer lýsir baráttu sinni við „demóna myrkursins“ og hafði þetta að segja við þá sem fengu bréfið sent: „Klæðist alvæpni Guðs, til þess að þér getið staðist vélabrögð djöfulsins.“
Og hún bætir við: „Því þetta er barátta. Þetta er stríð við raunverulega stríðsherra myrkursins og þeir eru að berjast til að sigra.“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
