eyjan.is

Fimmtudagur 15.12.2011 - 20:54 - Ummæli ()

Aðstoðarmaður Katrínar: Frétt Financial Times er alröng. Engir fundir með Huang

Frétt Financial Times um fundi með fulltrúum Huangs Nubos er alröng, segir aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur.

Ekki er unnið að því að finna „bakdyraleið“ fyrir Huang Nubo til að komast framhjá afskiptum innanríkisráðherra af kaupum hans á Grímsstöðum á Fjöllum, segir aðstoðarmaður iðnaðarráðherra.

Eyjan vitnaði í kvöld í frétt Financial Times þess efnis að fulltrúar Huangs hefðu í dag fundað með embættismönnum í iðnaðarráðuneytinu. Umræðuefnið hafi verið að finna leiðir til þess að Huang gæti keypt Grímsstaði á Fjöllum án þess að leyfi innanríkisráðuneytisins þyrfti til.

Þetta segir Kolbeinn Marteinsson, aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur, að sé alrangt:

„Enginn starfsmaður ráðuneytisins né ráðherra hefur fundað með Huang eða fulltrúum hans í dag eða undanfarna daga.

Það hafa ekki neinir fundir átt sér stað meðal starfsmanna iðnaðarráðuneytisins og fulltrúa hans síðan undanþágu um kaup kínverka hlutafélagsins á jörðinni var hafnað af innanríkisráðherra.

Frétt Financial Times á því ekki við rök að styðjast.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is