eyjan.is

Föstudagur 30.12.2011 - 09:54 - Ummæli ()

Sjósund allra meina bót? Astmasjúklingur hleypur upp Esjuna án þess að blása úr nös

Hefur sjósund beinan lækningarmátt? Sannarlega ef marka má reynslusögu ungrar konu sem þjáðist illa af astma og exem

Hvernig fer manneskja að því að bæta lélegt líkamlegt þol sitt en um leið losna bæði við astmasjúkdóm og slæmt exem? Með reglulegu sjósundi ef marka má konu hvers líf hefur tekið stökkbreytingum til hins betra síðan hún lagði þá íþrótt fyrir sig.

Sjósund nýtur vaxandi vinsælda hérlendis þó mörgum hrjósi hugur við að stinga sér til sunds í ísköldum sjónum. Er sjósundið af mörgum talið gott og hollt en að sögn Sigrúnar Þ. Geirsdóttur, þroskaþjálfa, hefur sjósundið haft beinan lækningarmátt eins og hún lýsir í grein á Vísi.

Áður en ég byrjaði í sjósundi [2008] var ég með mikinn áreynsluastma, hafði exem og nánast ekkert þol. Ég gat ekki labbað upp Esjuna öðru vísi en að stoppa nokkrum sinnum á leiðinni og kasta mæðinni. Ég var endalaust með steraáburð á lofti til að bera á mig og stóð á öndinni ef ég reyndi að hlaupa eitthvað og varð þá í framan á litinn eins og karfi.

Núna er þetta allt horfið og þakka ég sjósundinu fyrir það. Ég skokka upp Esjuna án nokkurra astmaeinkenna, fór meira að segja í fyrra upp á hæsta fjall stærsta jökuls Evrópu (Hvannadalshnjúk). Ég hljóp í sumar 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu og degi síðar synti ég formlegt Viðeyjarsund (4,3 km). Einnig er exemið nánast alveg horfið.

Enginn sem mig þekkir hefði trúað því fyrir nokkrum árum að ég ætti eftir að gera þetta allt saman.

Það sem gerist í líkamanum við það að fara í sjósund er að í kulda dragast æðarnar saman, pumpan fer alveg á fullt og álagið á hjartað eykst. Vissulega hljómar þetta svakalegt en treystið mér, þetta hefur gert kraftaverk fyrir mig, bæði andlega og líkamlega. Mér líður mun betur í dag og hlakka til að mæta í Nauthólsvíkina góðu í hverri viku til að synda með vinum mínum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is