Endurálagning skatta á móðurfélag Símans gæti numið tæpum tveimur milljörðum
Svo gæti farið að Skipti, móðurfélag Símans, gæti þurft að greiða tæpa tvo milljarða króna vegna endurálagningar skatta vegna skuldsettra yfirtaka fyrirtækisins. Nær málið sex ár aftur í tímann þegar Síminn var einkavæddur.
Yfirmenn Skipta áætla að upphæðin sem greiða þurfi geti verið frá 800 milljónum til 1,8 milljarðs króna en upphæðin er á reiki þar sem álagningin tengist túlkun á hagnaði og eða gengistapi fyrirtækisins á umræddum tíma.
Um er að ræða endurálagningu vegna skuldsettrar yfirtöku en þegar Síminn var seldur til Skipta haustið 2005 tók félagið sambankalán fyrir kaupunum. Í desember það sama ár var Skiptum, Íslenska sjónvarpsfélaginu (sem átti og rak Skjá einn) og Símanum svo rennt saman með öllum eignum og skuldum félaganna þriggja.
Tveimur árum síðar var félaginu skipt upp að nýju í fjórar einingar og varð þá Skipti móðurfélag hinna þriggja og tók þar af leiðandi yfir allar skuldir sem urðu til við einkavæðingu Símans eftir skipulagsbreytinguna.
Hefur vaxtakostnaður vegna yfirtökulánsins verið talinn frádráttarbær frá hagnaði og þar með lækkað skattgreiðslur félagsins en það segir ríkisskattstjóri óheimilt og hefur boðað endurálagningu,
Er þetta sams konar endurálagning og Húsasmiðjan hefur fengið boð um frá ríkisskattstjóra en rekja má forsendur þess máls til samruna tveggja eignarhaldsfélaga við Húsasmiðjuna á árunum 2003 til 2006.
Fréttablaðið greinir frá.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

