Sunnudagur - 8.1 2012 - 11:52 - Ummæli ()

HÍ borgar doktorum 1.800 kr. á tímann. Setja eigin gjaldskrá og hóta að hætta

Doktorar fá rúmar 1.800 krónur á tímann fyrir stundakennslu við Háskóla Íslands. Náttúrufræðingar vilja hækka þau laun um 126%.

Háskólinn borgar stundakennurum með doktorspróf 1.812 krónur á tímann. Félag íslenskra náttúrufræðinga vill að félagsmenn hætti að sætta sig við þau kjör.

Félagið hefur útbúið eigin launataxta og biður félagsmenn að taka ekki að sér stundakennslu við háskóla fyrir minna en 4.103 krónur á tímann.

Fengju allir þeir 2.000 stundakennarar sem starfa við Háskólann  greitt samkvæmt viðmiðunartaxta FÍN þýddi það 400 milljóna króna aukin útgjöld fyrir HÍ.

„Það sem Háskólinn er að bjóða er auðvitað fyrir neðan allar hellur. Það eru ekki boðleg laun,“ segir Páll Halldórsson, formaður félagsins í samtali við Fréttablaðið.

Enginn kjarasamningur er í gildi um kjör stundakennara heldur eru þau ákveðin einhliða af háskólanum og er þá tekið mið af dagvinnulaunum lektora sem öfugt við stundakennara eru fastráðnir starfsmenn á fullum mánaðarlaunum frá háskólanum.

Páll Halldórsson segir að viðmiðunartaxti félagsins hafi verið búinn til vegna óánægju félagsmanna með greiðslur Háskólans.
Samkvæmt honum hækka laun stundakennara með doktorspróf um 126% en hækkun stundakennara með minni menntun er á bilinu
111-182% samkvæmt taxtanum miðað við það verð sem háskólinn hefur verið að greiða.

„Við höfum í sjálfu sér ekkert vald í þessu efni en við getum bent á hvað okkur þykir eðlilegt. Við værum alveg tilbúin að ræða við Háskólann og reyna að semja við hann um eitthvað, en þar hafa menn tekið því þannig að þeir hafi í raun alræðisvald í þessu máli,“ segir hann í Fréttablaðinu.

Með því að Háskólinn ákvarði kjör einhliða sé gengið á rétt stundakennara. Aðildarfélög BHM hafi lengi litið á þetta fyrirkomulag sem hreint undirboð. „Það er verið að reka Háskólann að verulegu leyti á ódýrri stundakennslu og þannig kemst háskólinn upp með að vera með mun færri fasta kennara. Þetta gengur bara ekki.“

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segist vonast til að geta bætt úr hinum lágu greiðslum til stundakennara um leið og svigrúm myndast. En svigrúm sé ekki til staðar. „Því miður eru þessir taxtar FÍN óraunhæfir og útilokað fyrir okkur að bjóða stundakennslu á þessum taxta í núverandi árferði,“ segir hún.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar