Vilja vísa tillögu Bjarna Ben. frá. Líklega einsdæmi í sögu þingsins, komi til þess

Uppi eru hugmyndir um að koma í veg fyrir að tillaga Bjarna hljóti á alþingi.
Innan ríkisstjórnarflokkanna er nú í undirbúningi að flytja frávísunartillögu á þingi um tillögu Bjarna Benediktssonar í landsdómsmálinu.
Bjarni hefur lagt fram tillögu um að málshöfðun gegn Geir H. Haarde fyrir landsdómi verði felld niður. Sjálfstæðismenn lögðu mikla áherslu á að tillagan kæmist á dagskrá þingsins fyrir jól, en eftir þóf og þref varð að samkomulagi að hún yrði rædd. 20. janúar, þ.e. eftir rétta viku.
Tillaga Bjarna olli miklum usla innan þingflokka stjórnarflokkanna, sérstaklega Samfylkingarinnar, en flestir þingmenn flokksins greiddu á sínum tíma atkvæði gegn því að Geir yrði ákærður.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur látið að því liggja að ákæran á hendur Geir sé komin úr höndum þingsins og því sé ekki hægt að samþykkja tillögu Bjarna.
Það stangast á við lagalega greiningu Róberts Spanós, prófessors og forseta lagadeildar Háskóla Íslands, sem segir ákæruvaldið í málinu hjá þinginu og það sé í valdi þingsins að breyta ákærunni eða fella hana niður eftir atvikum.
Samkvæmt heimildum Eyjunnar er nú í undirbúningi innan ríkisstjórnarflokkanna að leggja fram frávísunartillögu til að koma í veg fyrir að tillaga Bjarna hljóti afgreiðslu. Er nú kannaður jarðvegurinn fyrir slíkan málatilbúnað, en samkvæmt heimildum Eyjunnar er óljóst hvort hann nýtur stuðnings meiri hluta þingmanna.
Stór hluti þingflokks Samfylkingarinnar mun ekki styðja frávísunartillögu og sama gildir um þrjá þingmenn Vinstri grænna, Ögmund Jónasson, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur og Jón Bjarnason, samkvæmt heimildum Eyjunnar.
Á móti kemur að þeir, sem kanna nú jarðveginn fyrir tillöguna, gera sér vonir um að tryggja henni stuðning Hreyfingarinnar og einhverra þingmanna Framsóknarflokksins.
Saksóknarnefnd alþingis fer með málatilbúnaðinn á hendur Geir fyrir þess hönd. Einn nefndarmanna, Sigurður Ingi Jóhannsson, samþykkti á sínum tíma að ákæra Geir en styður nú tillögu Bjarna. Formaður nefndarinnar, Atli Gíslason, hafði tillögu Bjarna til skoðunar í nokkra daga og gerði á henni textabreytingar áður en hún var lögð fram. Ekki er gert ráð fyrir að hann myndi greiða atkvæði gegn henni.
Þingmenn, sem Eyjan hefur rætt við, muna ekki fordæmi þess í þingsögunni að þingsályktunartillögu sé vísað frá án þess að hún komi til umfjöllunar í nefnd og afstaða þingheims til hennar komi fram.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
