
Björn Valur boðar viku mikilla tíðinda í stjórnmálum.
„Næsta vika mun verða mjög afdrifarík í íslenskum stjórnmálum, að mínu mati, alveg þar til kemur fram á næsta föstudag. Ég hef trú á því að þeir sem fylgjast vel með fréttum og hafa nef fyrir því sem er að gerast í samfélaginu, þeir munu finna lyktina af aðdraganda umræðunnar næstkomandi föstudag.“
Þetta sagði Björn Valur Gíslason þingflokksformaður Vinstri grænna í Silfri Egils í dag.
Á föstudag er á dagskrá alþingis tillaga Bjarna Benediktssonar um að fella niður ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrir landsdómi.
Eins og Eyjan greindi frá í fyrradag er um það rætt meðal þingmanna að flytja frávísunartillögu á tillögu Bjarna til að koma í veg fyrir að hún fái afgreiðslu innan þingsins.
Björn Valur viðurkenndi að slíkar viðræður hefðu átt sér stað, en ekki væri ljóst hver niðurstaðan yrði. Hann sagði ennfremur:
„Ég held að í næstu viku muni fara að gerast hlutir, bæði opinberlega og það sem fer ekki upp á yfirborðið, sem verða aðdragandi umræðunnar á fösudag.
Ég hef til dæmis trú á því að það muni hugsanlega berast einhverjar upplýsingar um það, hverjir verða kallaðir inn sem vitni [í málinu gegn Geir]. Það verður þá notað sem einhvers konar svipa á menn um að gera nú rétt þegar kemur til atkvæðagreiðslu næstkomandi föstudag.
Ég hef trú á því að sjálfstæðismenn komi ágætlega nestaðir í þessa umræðu, til dæmis af hálfu verjanda Geirs H. Haarde.
Svona mál spretta ekkert upp úr engu. Það gerist ekki þannig að Bjarna Benediktssyni datt það í hug einn daginn að flytja mál af þessu tagi. Þetta er vel undirbúið mál og það mun hafa sinn aðdraganda þangað til það kemur inn á þing.
Og það mun hafa mjög miklar og vondar afleiðingar fyrir íslenskt samfélag, fyrir lýðræðið, fyrir þingræðið og ekki síst fyrir dómskerfið, ef þingið ætlar að fara að hefja sína eigin umfjöllun um sakamál inni í þingsal og inni í þingnefndum. Það er fáheyrt og ég held að það hafi ekki gerst í nokkru vestrænu ríki að þjóðkjörið þing innkalli dómsmál og hefji umfjöllun um það.“
Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins sagði þennan málflutning fjarstæðukenndan og sýna grundvallarmisskilning Björns Vals á málinu. Ekki mætti gleyma því að alþingi sé ákæruvaldið í málinu gegn Geir.
„Alþingi breytti um hlutverk þegar það ákvað að ákæra menn í þessu máli. Þá breyttist alþingi úr því að vera pólitísk samkoma í hreina lagalega stofnun, sem þurfti að vega og meta [málið] með lögfræðilegum rökum,“ sagði Ólöf.
Hún sagði málið gegn Geir enn vera á forræði alþingis og minnti á þann úrskurð landsdóms frá því í haust, að ef ætti að breyta ákæruskjalinu með einhverjum hætti væri hlutverk alþingis að gera það.
