„Nú virðast flestir sótraftar á sjó dregnir til varnar Flokknum sem ráðið hefur lögum og lofum í þessu landi um áratuga skeið, sbr. t.d. greinaskrif í Morgunblaðinu í dag,“ segir Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, á Facebook-síðu sinni í dag.
Hann vísar augljóslega til greinar flokksbróður síns, Ögmundar Jónassonar, sem greinir frá því í Morgunblaðinu í dag að hann hyggist styðja tillögu formanns Sjálfstæðisflokksins um að Alþingi afturkalli landsdómsákæru gegn Geir H. Haarde.
Tilefni þess að Árni lætur ummælin falla er frétt, sem hann vísar í, um ályktun stjórnar flokksfélags VG í Reykjavík þar sem þingmenn flokksins eru hvattir til „að vera samkvæmir sjálfum sér og greiða atkvæði gegn þingsályktunartillögu Sjálfstæðisflokksins þess efnis að máli Geirs H. Haarde verði vísað frá landsdómi.“
„Þetta er hárrétt hjá stjórn VG í Reykjavík,“ segir Árni Þór.
Ofangreind tillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, kemur til umræðu og afgreiðslu á Alþingi á föstudaginn.
Ögmundur var í hópi þeirra 33 þingmanna sem greiddu atkvæði með málshöfðun fyrir landsdómi á sínum tíma en Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingkona VG, var í fæðingarorlofi. Varamaður hennar greiddi atkvæði með málshöfðun. Þau hafa nú bæði lýst því yfir að þau muni styðja tillögu Bjarna um að málshöfðun verði afturkölluð.
Ríkisútvarpið greindi frá því í hádeginu að þriðji þingmaðurinn úr hópi hinna 33ja, Ásmundur Einar Daðason, áður VG en nú í Framsóknarflokki, muni líklega einnig styðja afturköllun ákæru.
Á hinn bóginn hafa tveir úr hópi þeirra sem greiddu atkvæði gegn málshöfðun á sínum tíma lýst því yfir að þeir muni ekki styðja tillögu Bjarna Benediktssonar, að sögn RÚV. Þetta eru þeir Guðmundur Steingrímsson, utan flokka, og Róbert Marshall, Samfylkingu.
Óvíst er um afstöðu fleiri þingmanna til málsins, – bæði úr hópi þeirra sem studdu og hinna sem voru andvígir málshöfðun á sínum tíma.
Þá mun í undirbúningi, samkvæmt því sem fram er komið í fjölmiðlum, að leggja fram dagskrártillögu á þingfundi á föstudag til þess að fá tillögu Bjarna Benediktssonar vísað frá á þeim forsendum að hún sé ekki þingtæk.
Lilja Mósesdóttir, þingmaður utan flokka, lýsti því yfir á Facebook-síðu sinni í morgun að hún mundi ekki styðja þá dagskrártillögu þar sem hún teldi varasamt að koma í veg fyrir að mál frá stjórnarandstöðu kæmust á dagskrá Alþingis.

