Laugardagur - 21.1 2012 - 17:28 - Ummæli ()

Búsáhaldabyltingin þriggja ára, en í dag talar enginn um nýtt Ísland lengur

Eygló Harðardóttir

Búsáhaldabyltingin átti 3 ára afmæli í gær. Miklar vonir voru bundnar við hana, nýtt fólk á Alþingi, ný vinnubrögð, nýtt Ísland. Í dag talar enginn um nýtt Ísland lengur.

Þetta skrifar Eygló Harðardóttir, þingkona Framsóknarflokksins, í nýjum pistli hér á Eyjunni í dag í tilefni af sögulegri atkvæðagreiðslu á Alþingi í gær.

Eygló greiddi atkvæði með dagskrártillögu um að vísa tillögu formanns Sjálfstæðisflokksins frá. Sama gerði Siv Friðleifsdóttir þingkona og fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins, en aðrir þingmenn flokksins greiddu atkvæði gegn tillögunni. Allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins gerðu hið sama, en VG og Samfylkingin klofnaði í málinu og þingmenn Hreyfingarinnar vildu allir taka tillöguna af dagskrá.

Eygló segir að vonbrigði séu sú tilfinning sem bærist innra með sér í dag:

Það kom fátt á óvart í gær í atkvæðagreiðslunni. Hjá fæstum þingmönnum, ef einhverjum, snérist atkvæðagreiðslan um Geir H. Haarde, heldur eitthvað allt annað. Hjá sumum snérist þetta um reiði þeirra gagnvart samherjum sínum og vonbrigði með lítið breytt vinnubrögð. Skort á réttlæti. Núverandi stjórnvöld væru ekkert betri. Enn aðrir voru að spila um stöðu sína í flokknum. Ríkisstjórnina. Einhverjir voru hræddir við hvað gæti komið fram við réttarhöldin.

Og hún bætir við:

Fyrir mér snérist þetta um þrískiptingu valdsins, virðingu fyrir stjórnarskránni og lögum, – að valdi verður að fylgja ábyrgð. Kannski föst í eigin sannfæringu, eigin staðfestingarskekkju.

Allur Eyjupistill Eyglóar.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar