Svo virðist sem gífurlegur stuðningur sé meðal landsmanna við að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hætti við að hætta og bjóði sig fram aftur og enn sem forseti lýðveldisins – fimmta kjörtímabilið. Tæplega tíu þúsund manns hafa skrifað undir hvatningu til forsetans á skömmum tíma og miðað við undirtektirnar virðist ljóst að takmark um að minnsta kosti 40 þúsund undirskriftir geti náðst.
Meðal þeirra sem standa að undirskriftasöfnunni á vefsíðunni askoruntilforseta.is eru Guðni Ágústsson fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og ráðherra, Ragnar Arnalds fyrrverandi alþingismaður og ráðherra og Baldur Óskarsson, samherji og vinur Ólafs Ragnars til margra áratuga. Á kynningarfundi fyrir vefsíðuna og undirskriftasöfnunina sagðist Baldur bjartsýnn á undirtektir landsmanna og takmarkið væri að minnsta kosti 40 þúsund undirskriftir, eða það sama og safnaðist í undirskriftasöfnun InDefencehópsins um að forsetinn synjaði svokölluðum Icesave-lögum staðfestingar.
Fjölmiðlamaðurinn Gunnar Smári Egilsson fjallar um málið á vefsíðu sinni í dag og gerir hinar góðu undirtektir landsmanna að umtalsefni:
Það höfðu 8870 manns skrifað undir áskorun til Ólafs Ragnars um að bjóða sig fram þegar ég leit á síðuna fyrir hálftíma. Á sama tíma höfðu 358 skrifað undir áskorun á hann um að bjóða sig EKKI fram. Sú síða var stofnuð síðar en sú fyrri; svo ég beið í hálftíma til sjá hvor safnaði fleiri undirskriftum á þessum tíma. Það bættust 133 við stuðningsmenn Ólafs en 26 við andstæðinga hans. Tölvuspáin segir því að stuðningsmenn Ólaf verði orðnir 40 þúsund klukkan hálf þrjú á fimmtudaginn en þá verði skrásettir andstæðingar hans 3414 talsins. Tölvan spáir þ.a.l. að Ólafur Ragnar muni bjóða sig fram.
Guðni Ágústsson gerir grein fyrir stuðningi sínum við Ólaf Ragnar í ávarpi hér að neðan.
Undirskriftasöfnun til stuðnings forsetaframboði Ólafs Ragnar Grímssonar
Undirskriftasöfnun þeirra sem vilja ekki að forsetinn bjóði sig aftur fram
Á Ólafur Ragnar að verða við áskoruninni? Hvað finnst ykkur, lesendur góðir? Eyjan hvetur lesendur til að ræða málið í athugasemdum gegnum Facebook hér að neðan, en hvetur til hófstilltrar og málefnalegrar umræðu.
