Mánudagur - 23.1 2012 - 07:57 - Ummæli ()

Þrír þingmenn Samfylkingar sagðir æfir. Mikil ólga vegna Össurar

Össur Skarphéðinsson bar sig eftir því að taka þátt í atkvæðagreiðslu þingsins um mál Geirs Haarde og greiddi atkvæði gegn tillögu eigin þingflokksformanns

Sú ákvörðun Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, að flýta heimkomu sinni frá útlöndum til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni um tillögu formanns Sjálfstæðisflokksins og hafna þar frávísunartillögu síns eigin þingflokksformanns hefur valdið mikilli ólgu innan flokksins.

Fréttablaðið hefur heimildir fyrir að minnst þrír þingmenn hafi verið æfir á stuttum þingflokksfundi Samfylkingarinnar í kjölfar atkvæðagreiðslunnar á föstudaginn var eftir að frávísunartillögu starfandi þingflokksformanns, Magnúsar Orra Schram, var hafnað í atkvæðagreiðslu. Tillagan snéri að því að taka ekki fyrir að nýju tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, að draga ákæru þingsins á hendur Geir H. Haarde til baka.

Sérstaklega voru menn ósáttir við hlut Össurar Skarphéðinssonar sem var einn þeirra sem greiddi atkvæði gegn frávísunartillögunni en Össur kom sérstaklega erlendis frá til að taka þátt.

Á fundi í kjölfarið lýsti einn þingmaður flokksins því yfir að hann tæki sér ótímabundið frí frá störfum þingflokksins og annar að ekki væri lengur hægt að tala um þingflokk og viðkomandi ekki lengur bundinn af samþykktum flokksins. Þriðji þingmaðurinn sagðist ætla að íhuga sína stöðu yfir helgina.

Sjálfur gaf Össur lítið fyrir óánægju fólks aðspurður. „Varla er málum svo komið á Íslandi að það teljist til tíðinda að ráðherra sé samkvæmur sjálfum sér.“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar