Mánudagur - 23.1 2012 - 16:37 - Ummæli ()

Vill að forsætisráðherra rjúfi fremur þing og boði til kosninga en fallið verði frá ákærunni

G. Pétur Matthíasson

Ef það lítur út fyrir að þingsályktunartillaga um að vísa frá ákærum á hendur Geir Haarde verði samþykkt á Alþingi á Jóhanna Sigurðardóttir þann möguleika að rjúfa þing og boða til kosninga.

Þetta er mat G. Péturs Matthíassonar sem um árabil var helsti stjórnmálaskýrandi Ríkisútvarpsins, en er nú upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. G. Pétur fjallar á vefsíðu sinni um stöðu mála eftir atkvæðagreiðslu á Alþingi um Landsdómsmálið síðastliðið föstudagskvöld og telur rétt að forsætisráðherra komi með krók á móti bragði til að koma í veg fyrir að ákæran á hendur Geir H. Haarde verði dregin til baka.

G. Pétur segir að tillaga Bjarna Benediktssonar eigi nú eftir að fá þinglega meðferð í nefnd áður en til seinni umræðunnar um hana kemur.

Ef allt væri eðlilegt myndi það taka að minnsta kosti 4-6 vikur og líklega jafnvel 2-3 mánuði, jafnvel fjóra. Það væri eðlilegt.

En það er ekkert eðlilegt í þessu máli og útlit fyrir þrýsting á þing um að vinna hraðar að þessu máli en öllum öðrum.

Og G. Pétur segir þau Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrím J. Sigfússon atvinnumálaráðherra eiga leik í stöðunni.

Ef Jóhönnu og Steingrími tekst ekki að tryggja sér meirihluta fyrir því að fella tillöguna finnst mér að Jóhanna ætti að íhuga það alvarlega að rjúfa þing.

Rjúfa þing áður en en þingsályktunartillagan kæmi til annarrar umræðu. Ákæran yrði þannig ekki dregin til baka fyrr en þá nýtt Alþingi kæmi saman og nýskipað þing tæki ákvörðun um framhaldið. Eða gerði hreinlega ekki neitt.

Landsdómur myndi þá halda sínu striki og á næstu vikum, samhliða því að menn væru í kosningabaráttu hæfust vitnaleiðslur fyrir Landsdómi og kjósendur gætu þá íhugað framgöngu stjórnmálamannann fyrir hrun og í hruninu meðan þeir ákvæðu hverja þeir vildu helst ljá atkvæði sitt.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar