
Bankarnir stóru geta ekki með góðu móti gefið skuldugum heimilum landsins meira eftir en þegar er orðið samkvæmt nýrri úttekt
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands segir að svigrúm íslenskra banka til skuldaniðurfellingar vegna húsnæðislána almennings sé fulllnýtt með öllu. Þar staðfestir stofnunin mat bankanna sjálfra.
Hefur Hagfræðistofnun, að beiðni forsætisráðherra, farið yfir það síðustu mánuði hvort bankarnir hafi meiri möguleika til skuldaniðurfellingar en þegar hafa verið gerðar. Er niðurstaðan að svo sé ekki heldur þvert á móti hafi bankarnir í reynd þegar gert meira en efni voru til. Þannig hafi svigrúm til lækkana með yfirfærslu lána til nýju bankanna verið um 95 milljarðar króna að mati stofnunarinnar. Bankarnir hafi nú þegar fært niður skuldir heimilanna um 140 milljarða.
Er þetta í takti við það sem bankarnir sjálfir hafa haldið fram en aðspurður út í hugmyndir Hagsmunasamtaka heimilanna segir Sveinn Agnarsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, telja þær vafasamar í lagalegu tilliti en einnig að slíkt myndi kosta um 200 milljarða króna.
Í skýrslunni er lýst efasemdum um hvort leiðir sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa lagt til standist lög en talið er að þær leiðir yrðu dýrar og kostnaður sem gæti numið 200 milljörðum króna myndi falla á ríkissjóð.
Andrea Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, gefur lítið fyrir útreikningana í samtali við RÚV. „Svo fara þeir í vangaveltur um eignarréttarákvæði stjórnarskrár og lagatúlkanir og hvort okkar leiðir geti staðist lög. Við gerum okkur fulla grein fyrir að það þarf sérstaka lagasetningu til að fara í svona stóra efnahagslega aðgerð eins og við erum að fara fram á en það er bara pólitískur vilji og forysta sem þarf til þess.“
