Fimmtudagur - 26.1 2012 - 08:56 - Ummæli ()

En mannréttindi efnalítils fólks Bjarni? Gagnrýnir röksemdafærslu formanns Sjálfstæðisflokks

Ástæður Bjarna Benediktssonar fyrir að Alþingi skuli hætta við málsókn gegn Geir Haarde eru þær sömu og Landsdómur hafði áður hafnað þegar Geir Haarde fór fram á frávísun

„Sé formanni Sjálfstæðisflokksins annt um réttindi borgaranna, svo sem réttinn til réttlátrar málsmeðferðar, get ég t.d. bent honum á að raunverulegt tilefni er til að hafa áhyggjur af því að efnalítið fólk geti ekki gætt réttinda sinna fyrir dómi vegna þess hve möguleikar á gjafsókn eru takmarkaðir.“

Arnbjörg Sigurðardóttir, héraðsdómslögmaður, gagnrýnir þann málflutning Bjarna Benediktssonar að það sé fyrst og fremst umhyggja hans fyrir mannréttindum sem valdi því að hann fari fram á að Alþingi dragi ákæru á hendur Geir Haarde fyrir Landsdómi til baka.

Það skjóti skökku við segir Arnbjörg í pistli í Fréttablaðinu þar sem Landsdómur sjálfur hafi tekið afstöðu til stöðu mannréttinda í máli Geirs og komist að því að hans réttindi væru sannarlega ekki fyrir borð borin. Dómurinn hafi þvi ekki fallist á rök fyrir frávísun.

Tillaga Bjarna Benediktssonar byggir fyrst og fremst á sömu málsástæðum og Landsdómur hefur þegar tekið afstöðu til í ofangreindum úrskurði. Felur tillagan það því í raun í sér að Alþingi endurskoði niðurstöður Landsdóms. Ég held að mér sé óhætt að fullyrða að í Landsdómi sitji einstaklingar sem hafa umtalsvert betri þekkingu á stjórnskipunarrétti og mannréttindum en a.m.k. þorri þingmanna, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Bæði af þeim sökum og vegna grundvallarreglunnar um þrískiptingu ríkisvaldsins verður að telja fráleitt að Alþingi taki efnislega úrlausn Landsdóms til endurskoðunar með þeim hætti sem lagt er til.

Þá liggur fyrir að ákærði hefur alla burði til að verjast í málinu; hann hefur prýðisgóðan verjanda sem hefur m.a. notið aðstoðar prófessora í lögum við undirbúning málsvarnarinnar, velunnarar og vildarvinir hafa safnað í sjóð til að greiða málskostnað hans, auk þess sem engin ástæða er til að efast um að Landsdómur kunni mannréttindalögfræði.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar