
Hendur Geirs í aðdraganda hrunsins voru bundnar og engar hafði hann heimildir til aðgerða samkvæmt greinargerð um málsvörn hans
Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, taldi embætti sitt engar heimildir hafa til að grípa inn í starfsemi einkabankanna fyrir hrunið og allar hugsanlegar aðgerðir til að minnka efnahagsreikning þeirra óraunhæfar. Sömuleiðis hafi hugmyndir um flutning bankanna úr landi ekki verið á valdi forsætisráðherra.
Þetta er meðal þess sem Geir Haarde hyggst nota máli sínu til stuðnings í vörn sinni fyrir Landsdómi að því gefnu að mál hans fari alla leið en tillaga um að draga ákæru á hendur honum til baka er til umræðu hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingi.
Fréttastofa Stöðvar 2 hefur fengið afrit af greinargerð lögmanns Geirs þar sem farið er yfir vörn forsætisráðherrans fyrrverandi.
Þar kemur fram að Geir telur sig ekki hafa haft neinar heimildir til að gera neitt í þeirri stöðu sem skapaðist árið 2008 þegar staða bankanna hríðversnaði. Hann hafi ekki haft lagaheimildir til að grípa inn í starfsemi bankanna. Sömuleiðis hafi hugmyndir um að flytja bankanna úr landi verið fráleitar enda bankakerfið ekki í stórfelldri hættu á þeim tíma sem slíkt hefði átt að gerast. Vörn Geir felst einnig í því að margt það sem hann sé sakaður um hafi verið á valdi viðskiptaráðherra en ekki forsætisráðherra.
Óvíst er hvenær stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis afgreiðir mál Geirs úr nefndinni. Ekki er víst að það gerist áður en aðalmeðferð málsins á að hefjast.
