Fimmtudagur - 26.1 2012 - 09:35 - Ummæli ()

Margra ára rannsóknarvinna í sandinn? Aflétta kyrrsetningu á eignum vegna tafa

Mikið var gert úr handtökum einstaklinga sem taldir voru hafa brotið gegn lögum um gjaldeyrishöft. Síðan hefur lítið gerst

Kyrrsetningu eigna fjögurra einstaklinga sem grunaðir eru um að hafa framið stórfelld brot á lögum um gjaldeyrishöft hefur verið aflétt sökum tafa á rannsókn málsins. Rannsókn hefur staðið yfir í tvö og hálft ár.

Um er að ræða mál félagsins Aserta en lögregla, Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands héldu sérstakan blaðamannafund þegar fjórmenningarnir voru handteknir í lok janúar 2010.

Fóru fram yfirheyrslur og eignir mannanna kyrrsettar en brot þeirra var talið það alvarlegt að það hefði á sínum tíma haft áhrif á íslensku krónuna. Voru mennirnir sakaðir um að hafa keypt krónur á aflandsmarkaði fyrir milljarða fyrir hönd fjölmargra aðila og farið framhjá lögum um gjaldeyrishöft.

Fátt hefur gerst síðan þá samkvæmt Fréttablaðinu og er það ástæða þess að Hæstiréttur hefur nú aflétt kyrrsetningu á eignum mannanna. Rannsókn hafi dregist fram úr hófi og brjóti það gegn bæði stjórnarskrá og Mannréttindasáttmála Evrópu að svipta mennina forræði lengur.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar