Fimmtudagur - 26.1 2012 - 10:56 - Ummæli ()

Hagsmunasamtök leita til forsetans. Vilja að Ólafur beiti sér fyrir skuldug heimili

Hagsmunasamtök heimilanna óska liðsinnis forseta Íslands í baráttu sinni fyrir meiri skuldaniðurfellingum

Hagsmunasamtök heimilanna hafa óskað eftir fundi með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og hyggjast fara þess á leit að hann beiti sér fyrir málstað skuldugra heimila landsins og þrýsti á stjórnvöld í landinu. Til þess hafi hann ýmis tæki í stjórnarskránni.

Hagsmunasamtökin eru ósátt við þær niðurstöður sem fram hafa komið í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands og ýmsir hafa gert ríkar athugasemdir við útreikninga þeirrar stofnunar. Meðal þeirra eru Marinó G. Njálsson og Ólafur Arnarson.

Andrea Ólafsdóttir, talsmaður Hagsmunasamtakanna, segir í pistli að þar sem ekki virðist sem stjórnvöld vilji ganga lengra en orðið er og enginn taki undir sjónarmið samtakanna á Alþingi nema stjórnarandstöðuþingmenn sé það niðurstaða að leita til forseta Íslands. Forsetinn hafi tæki til að þrýsta á Alþingi að bregðast við vanda skuldugra heimila.

Telur Andrea að sjónarmið Hagsmunasamtakanna njóti víðtæks stuðnings þjóðarinnar og vísar þar til könnunar frá því í nóvember sem gefi til kynna að kröfur samtakanna um afnám verðtryggingar og almennar lánaleiðréttingar endurspegli vilja 80% þjóðarinnar.

Ennfremur hafi Sjálfstæðisflokkurinn ályktað um málið og tekið þar afstöðu með Hagsmunasamtökunum. Af því megi ráða að bæði sé þjóðarmeirihluti og þingmeirihluti fyrir kröfum samtakanna en mun meiri og dýpri aðgerðir til handa skuldsettum heimilum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar