Viðskipti Fimmtudagur - 26.1 2012 - 17:30 - Ummæli ()

Þjóðin á að taka sönsum. Afskriftir ekki í boði og einhverjum verður ekki bjargað

Ólafur Stephensen

Ritstjóri Fréttablaðsins, Ólafur Þ. Stephensen, segir tímabært að þjóðin taki sönsum. Skýrsla Hagfræðistofnunar Háskólans sýni að ekki sé grundvöllur fyrir afskriftum lána í stórum stíl, slíkt sé ekki í boði.

Ritstjórinn fullyrðir þetta í leiðara Fréttablaðsins í dag, en mikið hefur verið deilt um skýrslu Hagfræðistofnunar frá því hún var birt fyrr í vikunni. Hagfræðingarnir Ólafur Arnarson og Gunnar Tómasson hafa til dæmis gefið henni falleinkunn, eins og Eyjan hefur skýrt frá og þá var skýrslan harðlega gagnrýnd á Alþingi í gær.

Ólafur Þ. Stephensen segir hins vegar að bankarnir hafi fullnýtt afsláttinn af húsnæðislánasöfnum, sem gefinn var þegar þau færðust úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Kostnaðurinn við að færa húsnæðislán allra niður um 18,7% væri rúmlega 200 milljarðar króna:

Hann myndi að langmestu leyti lenda á skattgreiðendum. Upphæðin samsvarar meira en þriðjungi af áætluðum útgjöldum ríkissjóðs árið 2012.

Hver maður ætti að geta séð að þessi leið er ekki fær, og jafnvel þótt til væru peningar væri lítið réttlæti fólgið í slíkri endurdreifingu áfallsins sem lántakendur urðu fyrir við hrun krónunnar. Enda benda skýrsluhöfundar á að sambærileg leið hefur hvergi verið farin.

Og ritstjórinn beinir spjótum sínum að Hagsmunasamtökum heimilanna og segir þau taka engum sönsum, þótt þessi niðurstaða liggi fyrir og telji Hagfræðistofnun fara með tómar blekkingar:

Þeir eru kolfastir í ranghugmyndum um að risavaxin millifærsla fjármuna frá almennum skattgreiðendum til skuldara sé einfalt mál og sanngjarnt. Samtökin og forystumenn þeirra hafa í raun endanlega stimplað sig út úr vitrænni umræðu um þessi mál.

Og ritstjórinn vill binda enda á umræður um skuldaafskriftir í eitt skipti fyrir öll:

Tímabært er að stjórnmálamenn, sem enn taka þátt í þeim ábyrgðarlausa leik að gefa fólki í skyn að meira kunni að verða gert fyrir skuldara og að niðurfærsla lána sé jafnvel enn inni í myndinni, hætti honum og sýni að þeir geti tekið mark á staðreyndum. Ef alltaf er látið í veðri vaka að nýjar lausnir séu á leiðinni, hafa fáir hvata til að taka í alvöru á sínum málum.

Þótt sársaukafullt kunni að vera að horfast í augu við það, verða þau úrræði sem stjórnvöld og lánastofnanir hafa nú þegar boðið illa stöddum skuldurum að duga til skemmri tíma litið. Einhverjum verður ekki bjargað frá húsnæðismissi og þar þarf velferðarkerfið að grípa inn í.

Til lengri tíma litið ættu þeir sem hafa áhyggjur af stökkbreyttum skuldum heimilanna að beita sér fyrir því að hér verði tekinn upp nothæfur gjaldmiðill, sem útheimtir hvorki verðtryggingu né að fólk freistist til að taka lán í erlendum gjaldmiðlum til að fjármagna þak yfir höfuðið. Slíkur gjaldmiðill kæmi í veg fyrir nýja kollsteypu á borð við þá sem skuldarar urðu fyrir barðinu á þegar krónan féll.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar