Fimmtudagur - 26.1 2012 - 18:43 - Ummæli ()

Telur hægt að bjóða skuldsettum að skila íbúðum sínum án þess að setja allt í uppnám

Eyjubloggarinn Friðrik Jónsson kemur fram með nýtt tilbrigði við lyklafrumvarpið sem hugsanlega lausn þeirra er mest skulda í íbúðum sínum

Gæti það verið lausn fyrir einhverja að fá tímabundið að skila skuldsettum fasteignum sínum til banka og lánastofnanna án allra afleiðinga og gæti jafnframt leigt viðkomandi eign ef þeir svo kysu? Slíkt ætti að vera hægt án þess að setja allt kerfið í uppnám.

Þannig spyr Eyjubloggarinn Friðrik Jónsson sem er í nýjum pistli hugsi yfir þeim heimilum landsins sem eru yfirveðsett og ekki sjáanleg nein raunveruleg lausn á því máli. Ólíkt mörgum öðrum sem um málið hafa fjallað íhugar Friðrik lausnir á málinu og veltir fyrir sér hvort lausn þeirra sem skulda meira en hundrað prósent í fasteignum sínum sé að skila lyklunum en þó ekki með valdboði heldur af frjálsum vilja og í samstarfi við alla aðila.

[...] Og ef það er þannig að litlar líkur séu á samstöðu um þær tillögur sem þó hafa komið fram, er kannski vert að reyna að tefla fram nýjum, eða öðrum útfærslum á leiðum sem þegar hafa verið lagðar til.

Ég hef t.d. verið að velta fyrir mér hvort hægt væri í samráði ríkis, sveitarfélaga, banka, íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóða að opna á það í afmarkaðan tíma – segjum næstu 6 mánuði – að þeir sem skulda yfir 100% í sínum eignum geti skilað þeim til bankans síns án afleiðinga en stæði jafnframt til boða að leigja eignina langtímaleigu af bankanum, ef viðkomandi vildi, til hugsanlega fimm eða tíu ára.

Bankarnir og í einhverjum tilvikum Íbúðalánasjóður, setji allar slíkar eignir í sér eignarhaldsfélög og tengt þessu verði þeim félögum veittur sérstakur skattaafsláttur eða skattundanþága þ.a. eignarhaldsfélög þessi njóti í ákveðin tíma skattfrelsis af leigutekjum – t.d. 5 til 10 ár – sem komi til móts við hugsanlegan „kostnað“ bankanna af þessari aðgerð.

Þetta yrði liður í að hreinsa til í lánasöfnum bankanna og í efnahagsreikningi þeirra, en án þess að setja fasteignamarkaðinn í algert uppnám. Aðgerð þessi myndi þannig væntanlega kaupa ákveðinn frið til meðallangs tíma fyrir bæði menn og markað til að rétta úr kútnum, en á sama tíma myndi fjöldi folks losna úr þeirri snöru sem núverandi ástand hefur fest það í. Þetta yrði fyrir einhverja jafnvel raunverulegur valkostur við gjaldþrot og/eða greiðsluaðlögun.

Bankarnir (og Íbúðalánasjóður) fengu með þessu móti frið til að taka til í sínum íbúðalánasöfnum í gegnum eignarhaldsfélögin, ásamt því að fá stöðugri og raunhæfari efnahagsreikning og tekjustreymi. Lífeyrissjóðirnir myndu hugsanlega geta komið að fasteignafélögunum sem fjárfestar og tryggt sér bæði þokkalegt tekjustreymi og stöðuga eign.

Þegar hættir svo að rjúka úr rústum íslensks fasteignamarkaðar væri svo að sjálfsögðu opið fyrir fyrrum eigendur og núverandi leigjendur að kaupa eignina aftur af bankanum.

Þetta er tilbrigði við lyklaleiðina, en hér er þessu teflt fram sem takmarkaðri aðgerð sem boðið yrði upp á í takmarkaðan tíma, s.s. valkvætt og tímabundið og í samstarfi aðila, en ekki með valdboði.

Hér yrði líka að taka á þáttum eins og vaxtabótum og húsaleigubótum, og þetta er ekki „fullkomin“ lausn frekar en aðrar. Skrattinn verður jú í smáatriðunum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar