Þórólfur Matthíasson, prófessor við Háskóla Íslands, veltir fyrir sér hvort Bændasamtök Íslands lumi á eignum fyrir milljarða króna í kjölfar skoðunar á rekstrarhluta ársreiknings samtakanna. Finnur prófessorinn ýmislegt athugavert í reikningunum.
Þórólfur hefur legið yfir ársreikningi Bændasamtakanna undanfarin ár í því skyni að reyna að meta raunveruleg framlög ríkisins til starfsemi samtakanna. Er það mat prófessorsins í kjölfarið að ýmislegt orki þar tvímælis og tiltekur í pistli fjölda dæma sem undarleg verða að teljast.
Reikningarnir bera með sér að velta Bændasamtakanna sé um 600 milljónir króna á ári. Félagsgjöld aðildarfélaganna eru heilar 250 þúsund krónur(!), auglýsingatekjur og áskriftargjöld Bændablaðsins um 45 milljónir, útseld skýrsluvélaþjónusta um 11 milljónir og hugbúnaðarsala um 30 milljónir. Beinar greiðslur úr ríkissjóði til Bændasamtakanna virðast nálægt 350 milljónum króna árlega. Ekki verður ályktað með því að skoða ársreikninginn hversu háar greiðslur Bændasamtökin fá frá ríkissjóði fyrir verktöku af ýmsu tagi. Framsetning ársreikningsins er því með þeim hætti að ekki er hægt að útiloka að greiðslurnar nemi allt að 400-500 milljónum króna á ári.
Ráðgjafaþjónusta Bændasamtakanna virðist niðurgreidd um ríflega 100 milljónir króna. Skýrsluvéla- og forritunarþjónusta virðist rekin með 70 milljóna króna halla. Hluti þeirrar ráðgjafar sem samtökin veita er hefðbundin rekstrarráðgjöf sem aðrir rekstraraðilar en bændur þurfa að kaupa fullu verði af endurskoðunarstofum eða öðrum sérhæfðum aðilum. Önnur fyrirtæki en þau sem rekin eru af bændum þurfa að greiða forritun og tölvuvinnslu fullu verði. Það er fyllsta ástæða til að velta fyrir sér hvort það sé skynsamleg ráðstöfun skattpeninga að nota þá til að veita bændum hefðbundna rekstrarráðgjöf og til að skrifa bókhaldsforrit. Reyndar má spyrja hvort slík ráðstöfun stangist ekki á við ákvæði samkeppnislaga.
Athygli vekur að Útgáfu- og kynningarsvið, sem m.a. sér um útgáfu Bændablaðsins, er rekið með 30-50 milljón króna halla árlega. Ljóst er að sá halli er ekki greiddur af aðildarsamtökum Bændasamtakanna, frekar en annar halli af einstökum starfssviðum. 250 þúsund króna árlegt framlag aðildarsamtakanna dugar ekki einu sinni til að dekka hallann af rekstri kaffistofunnar sem virðist 6-7 milljónir króna á ári. Sú spurning vaknar hvort Bændablaðið, sem dreift er víða um land og er þekkt af nokkuð eintóna, sumir segja sérlundaðri ritstjórnarstefnu, sé í raun kostað af skattgreiðendum.
Þá má og spyrja, með hliðsjón af lélegri rekstrarafkomu svokallaðra búreikningsbúa, hvort ekki sé hægt að bæta rekstrarráðgjöf sem bændur fá. Verður það ekki að nokkru leyti að skrifast á reikning ráðgjafanna að meðalsauðfjárbú á landinu nær því ekki að skapa tekjur til að greiða bændum og öðru starfsliði laun eða standa undir vaxtagreiðslum? Á ráðgjöfin ekki einhverja sök í því að skattgreiðendur greiða öll laun og allan fjármagnskostnað meðalsauðfjárbúsins? Þarf ekki að taka slíka ráðgjöf til endurskoðunar? Er ekki kominn tími til þess að fá erlenda úttektaraðila til að gera úttekt á gæðum þeirrar þjónustu og þeirri ráðgjöf sem Bændasamtökin veita?
Ekkert verður fullyrt með vissu um eignastöðu Bændasamtakanna nema hafa aðgang að efnahagsreikningshluta ársreiknings. En sú staðreynd að hreinar fjármunatekjur samtakanna eru allt að 150 milljónir króna bendir til þess að hreinar eignir Bændasamtakanna séu af stærðargráðunni 1 til 3 milljarðar króna. Hvorki rekstur Bændablaðsins á undangengnum áratugum, né aðildarfélagaframlögin eru af þeirri stærðargráðu að hafa byggt upp eiginfjárstöðu í milljarðaklassanum.
Megnið af umsvifum Bændasamtakanna er í raun umsýsla með skattfé. Samtökin þurfa þó ekki að hlíta þeim ströngu reglum um réttmætt tilefni útgjalda sem ríkisstofnanir þurfa að gera. Ríkisstofnun myndi t.d. ekki komast upp með að gefa út vikurit um hugðarefni og hagsmunamál forstjóra stofnunarinnar. Hvað þá að prenta í risaupplagi og dreifa í sveitir og kaupstaði auk sundstaða og verslanamiðstöðva höfuðborgarinnar.

