Lilja Mósesdóttir alþingismaður og doktor í hagfræði hafnar þeirri fullyrðingu margra, nú síðast Hagfræðistofnunar Háskólans, að svigrúm til leiðréttinga fasteignalána sé fullnýtt og of seint sé að leiðrétta þau frekar.
Lilja fullyrðir á fésbókarsíðu sinni að nauðsynlegt sé að leiðrétta öll fasteignalán:
Að öðrum kosti munum við ekki komast út úr kreppunni og búa við langvarandi skuldakreppu eins og Japan.
Lilja segir að tryggja verði að allur afslátturinn farið til heimilanna og enn vanti um það bil 53 milljarða til að það takist.
Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, hvatti þjóðina í gær í leiðara til að taka sönsum, frekari niðurfærslur eða leiðréttingar væru ekki raunhæfar. Lilja er ósammála þessu:
Andstaðan við almenna leiðréttingu lána er blekkingarleikur og tilraun til að láta 60 þúsund heimili í stað 150 þúsunda heimila taka á sig tap Íbúðalánasjóðs. Lífeyrissjóðir eiga eignir sem geta tapast og rýrnað. Það er sjóðsfélaganna en ekki skuldsettra heimila að taka tapið á sig. Almannatryggingar eiga síðan að bæta skerðingu – til þess eru þær.

