
Aukin samkeppni í þágu neytenda er ekki nægilega sterkt ástæða til að kollvarpa búvörulögum að mati Steingríms J. Sigfússonar
Samkeppniseftirlitið segir það koma öllum neytendum í landinu til bóta að endurskoða búvörulög í því skyni að efla samkeppni hérlendis. Ráðherra landbúnaðarmála, Steingrímur J. Sigfússon, segir ekki koma til greina að kollvarpa búvörulögum til að efla samkeppni.
Í nýrri skýrslu Samkeppniseftirlitsins um verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði sem kynnt var í gær leggur stofnunin fram tillögur til hagsbóta fyrir neytendur en skýrslan sýndi að risarnir í matvöruverslun fá umtalsvert betri verð frá birgjum en smærri verslanir. Það skekki eðlilega alla samkeppni.
Samkeppniseftirlitið telur mikilvægt að stjórnvöld grípi til aðgerða til að efla samkeppni. Ekki síst eigi það við um málefni er varða vinnslu og sölu landbúnaðarafurða. Ljóst er að yfirvöld hafa ekki dregið fullnægjandi lærdóm af þeim jákvæðu áhrifum sem reynslan sýnir að heilbrigð samkeppni getur haft á ýmis svið landbúnaðar eins og segir í skýrslunni.
Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra landbúnaðar, segist ánægður með skýrsluna en segir enn fremur við Fréttablaðið að ekki standi til að kollvarpa þeirri landbúnaðarstefnu sem við lýði sé þrátt fyrir það.
„Þarna vegast á ýmsir ólíkir hagsmunir. Frá hreinu samkeppnislegu sjónarmiði má færa rök fyrir slíkri endurskoðun. Hinum megin frá koma sjónarmið sem snúa að fæðuöryggi og byggð í landinu. Landbúnaður ætti sér ekki tilverugrundvöll á Íslandi ef innflutningur væri óheftur. Ég sé því ekki fyrir mér að við förum að kollvarpa landbúnaðarstefnunni bara vegna þess að það yrði jákvætt í samkeppnislegu tilliti. Það getur komið til greina að gera breytingar á fyrirkomulaginu en þá þarf líka að ná fram öðrum markmiðum til að við getum staðið vörð um innlenda framleiðslu og innlendan matvælaiðnað. Við verðum að geta staðið undir 50% af matvælaframleiðslu til að stuðla að fæðuöryggi.“
