Mikil reiði er innan Samfylkingarinnar vegna þess sem margir telja algeran trúnaðarbrest hjá formanni Samfylkingarfélagsins í Reykjavík. Hann hefur viðurkennt að hafa afhent blaðamanni DV tölvupósta sem flokknum hafa borist um úrsagnir. Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar telur þetta óheimilt og hefur gert mjög alvarlegar athugasemdir við hann, að því er fram kemur í tölvupósti sem hún hefur sent Þingflokki Samfylkingarinnar.
Í DV í dag er fjallað um félagsfund í Samfylkingarfélaginu í Reykjavík sem haldinn var á dögunum og deilur sem sprottið hafa upp innan flokksins í kjölfarið á atkvæðagreiðslu á Alþingi um Landsdómsmálið. Þar eru birt orðrétt ummæli sem sögð eru úr tölvupóstum sem borist hafa til flokksins frá fólki sem vill segja sig úr Samfylkingunni og tilgreinir ástæður fyrir því.
Í tölvupósti sem Eyjan hefur undir höndum og Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, sendi þingflokknum í dag segir m.a.:
Til þingflokks Samfylkingarinnar, eftirfarandi póstur var sendur til framkvæmdastjórnar vegna fréttar í DV í dag – við sem störfum hjá flokknum viljum ítreka að samskipti við flokksskrifstofu eru í trúnaði og þið eigið ekki á hættu að póstar frá ykkur birtist annars staðar, um hvað svo sem þeir fjalla.
_______Ágæta framkvæmdastjórn (aðal- og varamenn), vegna umfjöllunar í DV í dag um félagsfund Samfylkingarinnar í Reykjavík tel ég nauðsynlegt að taka fram að texti sem vitnað er til í ramma þar sem fjallað er um úrsagnir er ekki kominn frá skrifstofu flokksins. Við virðum trúnað þeirra sem senda okkur tölvupósta og afhendum ekki fjölmiðlum pósta sem okkur eru sendir frá félagsmönnum né heldur birtum þá í fjölmiðlum. Allt sem viðkemur félagaskrá flokksins er trúnaðarmál og ber að umgangast og meðhöndla sem slík að okkar mati og það höfum við gert.
Formaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík hefur staðfest við mig að hann hafi afhent blaðamanni þessa texta sem birtir eru nafnlausir í blaðinu í dag. Ég kom skýrt á framfæri við hann að það teldi ég honum ekki heimilt og gerði mjög alvarlegar athugasemdir við hann vegna þessa.
Við sem störfum á skrifstofu flokksins hörmum að blaðamanni DV hafi verið afhent þessi gögn. Við höfum borið traust til formanna félaga og þessi birting í dag er okkur gríðarleg vonbrigði.
Vildi koma þessu á framfæri við ykkur til að taka af allan vafa um að við sem hér störfum höfum ekki afhent blaðamanni DV nokkur gögn sem snerta félagaskrá flokksins.
Samkvæmt heimildum Eyjunnar er talið fullvíst að farið verði fram á afsögn Kjartans Valgarðssonar sem formanns Samfylkingarfélagsins í Reykjavík vegna málsins. Verði hann ekki við þeirri áskorun er undirbúningur hafinn að því að bera fram vantraust á hann á næsta félagsfundi.

