Óhætt er að segja að uppnám sé innan Samfylkingarinnar fyrir flokksstjórnarfund sem haldinn verður á morgun, laugardag. Samkvæmt traustum heimildum úr innsta kjarna Samfylkingarinnar í Reykjavík óskaði Kjartan Valgarðsson formaður félagsins, eftir því við nokkra þingmenn að þeir söfnuðu nöfnum annarra þingmanna á undirskriftalista gegn fjórmenningununum sem greiddu atkvæði gegn frávísunartillögunni í landsdómsmálinu.
Eyjan hefur heimildir fyrir því, að í þessum hópi séu að minnsta kosti þau Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Skúli Helgason og Helgi Hjörvar. Lagði Kjartan áherslu á snör vinnnubrögð, til að hægt væri að leggja listann fyrir flokksstjórnarfund, sem haldinn er á morgun, laugardaginn 28. janúar.
Þingmenn sem Eyjan hefur talað við, hafa lýst miklum efasemdum um háttalag Kjartans formanns Samfylkingarfélagsins í Reykjavík, sem þeir telja beinlínis til þess fallið að stuðla að ágreiningi, eða klofningi í þingflokknum.
Eins og Eyjan greindi frá fyrr í dag olli Kjartan uppnámi í Samfylkingunni þegar í ljós kom að hann lak trúnaðarpóstum, af flokksskrifstofunni, til DV.
Kjartan er í kjöri, af hálfu uppstillingarnefndar í Reykjavík, til formanns fulltrúaráðs.
Þrettán flokksmenn á Akureyri sendu líka frá sér mótmæli fyrir skömmu, þar sem sérstaklega voru teknir fyrir þingmenn flokksins í Norðausturkjördæmi, Kristján Möller og Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Áður hafði stjórn ungra jafnaðarmanna lýst vantrausti á Ástu R. Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, fyrir að taka tillögu Bjarna Benediktssonar á dagskrá þingsins. Sögðu ungir jafnaðarmenn það íhlutun í dómsmál, en saksóknari alþingis í málinu, Sigríður R. Friðjónsdóttir, sagði fyrir þingnefnd að alþingi hefði fullt vald til að endurskoða ákæruna.
Þá hefur Eyjan heimildir fyrir því, að hringt hafi verið í stjórnarmenn í flokksfélögum á landsbyggðinni til að hvetja þá til að álykta um málið.
Þingmaður sem Eyjan ræddi við sagði:
Verði málið ekki kælt mun það leiða til mikillar sundrungar í flokknum.
