Laugardagur - 28.1 2012 - 11:04 - Ummæli ()

Ákveðnir birgjar til rannsóknar. Vilja til botns í miklum afsláttarkjörum til stórverslana

Hagkaup er ein þeirra verslana sem njóta mun betri kjara hjá birgjum en smærri verslanir á íslenskum markaði

Samkeppniseftirlitið hyggst fara frekar í saumana á því hvers vegna stórverslanir njóti mun betri kjara en smærri aðilar í dagvöruverslun í kjölfar úttektar sem sýnir að munurinn er allt að 30 prósentum á einni og sömu vörunni.

Þetta staðfestir forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Páll Gunnar Pálsson, við Fréttablaðið en rannsóknin mun beinast að því að meta hvort mismunandi kjör standist samkeppnislög. Ákveðnir birgjar verði teknir fyrir í þeirri rannsókn.

Ekki er hægt að útiloka að mismunandi viðskiptakjör milli verslana séu að hluta til eðlileg með tilliti til magninnkaupa en samkeppnisyfirvöld telja þó ólíklegt að hægt verða að færa rök fyrir að það gildi í öllum þeim tilvikum sem um ræði samkvæmt skýrslu stofnunarinnar.

Viðurlög við brotum á samkeppnislögum eru sektir en einnig hefur Samkeppniseftirlitið heimildir til frekari aðgerða ef talin er þörf á í því skyni að koma í veg fyrir endurtekin brot.

Skýrslan sem birt var í vikunni sýndi að stærsti aðilinn á markaði, Hagar sem reka meðal annars Bónus og Hagkaup, njóta að meðaltali 15 prósenta betri kjara hjá birgjum landsins en smærri aðilar. Sömuleiðis nutu aðrar stórar keðjur á borð við Kaupás og Samkaup einnig betri kjara en aðrir.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar