Laugardagur - 28.1 2012 - 12:55 - Ummæli ()

Aukin verðbólga vonbrigði segir Steingrímur. Ástæðan að enginn treystir krónunni segir Egill

Ekki tekst að koma böndum á verðbólgu hérlendis sem er mun hærri en gerist erlendis. Hún mælist nú 6,5 prósent

Rúmum tveimur árum eftir að 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands náðist í fyrsta skipti í sex ár hefur verðbólgan rokið upp að nýju og mælist nú 6,5 prósent á ársgrundvelli samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir þetta vonbrigði en við þessu hafi þó verið búist. Töluverðar gjaldskrárhækkanir hjá ríki og sveitarfélögum hafi orðið um áramótin auk þess sem verðlag hafi hækkað með veikingu íslensku krónunnar. Ráðherrann telur þó betri tölur framundan og verðbólgan hjaðni fljótt aftur í samtali við fréttastofu RÚV.

„Við erum svona á daufasta tíma ársins hvað það snertir þegar minnstar gjaldeyristekjur eru að koma úr ferðaþjónustunni og áður en mikill útflutningur af vetrarvertíðinni fer í gang. Þannig að með styrkingu gengis og vegna þess að þá koma hagstæðari mánuðir inn í meðaltalið á næstunni.“

Einn þeirra sem gagnrýnir hækkandi verðbólgu er Egill Helgason. Í pistli segir hann engar ástæður vera fyrir hækkuninni. Ekki sé þensla í hagkerfinu, atvinnuleysi mikið og kaupmáttur hafi minnkað.

Íslenska hagkerfið starfar nú þannig að fjárskuldbindingar eru verðtryggðar í bak og fyrir. Þetta er vegna þess að enginn treystir íslensku krónunni. Það virðist hins vegar ekki vera nokkur leið að koma verðbólgunni niður fyrir markmið Seðlabankans – reynslan sýnir að þangað kemst hún hérumbil aldrei.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar